Grafarvogsdagurinn, hverfishátíð Grafarvogsbúa, fer nú fram í 21. sinn sunnudaginn 3. júní.

Grafarvogsdagurinn, hverfishátíð Grafarvogsbúa, fer nú fram í 21. sinn sunnudaginn 3. júní. Sem fyrr er markmið dagsins að sameina íbúa hverfisins og skapa vettvang til að hittast og gera sér glaðan dag.

Vel hefur tekist að virkja þann mikla mannauð sem býr í hverfinu og mun fjöldinn allur af einstaklingum, fyrirtækjum, og félögum leggja hönd á plóg við að gera dagskrá dagsins sem glæsilegasta.

Helstu dagskrársvæðin að þessu sinni verða í og við EgilshöllFélagsmiðstöðinni Borgum, á Korpúlfsstöðum og í Gylfaflötinni þar
sem verslunin Krumma og Landsnet bjóða til viðamikillar dagskrár.

Auk þess mun Grafarvogskirkja bjóða fólk hjartanlega velkomið til sín sem og Frístundamiðstöðin Gufunesbær og Grafarvogslaug sem bjóða upp á skemmtidagskrá.

Undirbúningur hátíðahaldanna er í höndum Miðgarðs, þjónustumiðstöðvar Grafarvogs og Kjalarness, en verkefnið er samstarfsverkefni fjölda félaga, fyrirtækja, einstaklinga og stofnana í

Grafarvogi. Mikil vinna hefur verið lögð í dagskrárundirbúning og nú er komið að íbúum hverfisins að taka virkan þátt í því sem boðið verður upp á. Fjölmörg fyrirtæki í hverfinu styðja rausnarlega við bakið á verkefninu og eru þeim hér með færðar sérstakar þakkir fyrir þeirra framlag.
Gerum okkur glaðan dag á sunnudaginn!

Hér eru allar upplýsingar um Grafarvogsdaginn:

Viðburður:

https://www.facebook.com/events/408852806257911/?active_tab=discussion

Bæklingur:

https://issuu.com/grafarvogsdagurinn/docs/grafarvogsdagurinn_web__1_

Leikhópurinn Close Act frá Hollandi með Saurus atriði:

https://youtu.be/UmBct495Io0

 

Um höfundinn

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.