Íþróttaskóli Fjölnis er fyrir börn á aldrinum 3-6 ára. Ný námskeið hefjast laugardaginn 18.janúar. Hóparnir eru aldursskiptir, 3 – 4 ára hópurinn er kl. 09.00 og 5 – 6 ára hópurinn er kl. 10.00. Um er að ræða 10 laugardaga, þar sem farið verður í skemmtilega leiki um leið og unnið er með gróf – og fín hreyfingar, jafnvægi og ýmsar áskoranir. Íþróttaskólanámskeiðin eru í Hamraskóla.
Íþróttafræðingurinn Gylfi Guðnason fer fyrir hópunum. Skráning fer fram í iðkendaskráningarkerfi félagsins á heimasíðu þess www.fjolnir.is Hægt er að fá aðstoð við skráningu á skrifstofu félagsins í síma 578 2700.
Hlökkum til að sjá ykkur
Kær kveðja, Gylfi
One Comment
Góða kvöldið…
Mig vantar að vita hvort það sé íþróttaskóli í sumar hjá þér,þar sem sonur minn verður 3ja þann 06.06 og hann er svakalegur orkubolti og honum langar rosalega að æfa fótbolta einsog stóri bróðir sinn. Hvenær verður opnað fyrir skráningar fyrir sumartímann/haustönn? með bestu þökkum Hugrún