Fjölnir á sjö leikmenn af ríflega hundrað sem boðaðir eru á úrtaksæfingar hjá yngri landsliðum kvenna í knattspyrnu um næstu helgi, 7.-8. desember.
Þær Elvý Rut Búadóttir, María Eva Eyjólfsdóttir, Tanja Líf Davíðsdóttir og Guðný Ósk Friðriksdóttir verða á meðal 36 leikmanna á æfingum með 97´árgangi, Jasmín Erla Ingadóttir og Stella Þóra Jóhannesdóttir eru í 34 leikmanna hópi 98´árgangsins og Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir er ein 36 stúlkna 99´ árgangsins sem boðaðar eru til æfinga.
Glæsilegir fulltrúar Fjölnis og framtíðin björt í Grafarvoginum