• HEIM
  • HAFÐU SAMBAND
facebook
email
Helgihald kyrruviku og páska í Grafarvogskirkju
Fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur 12. mars 2025
Keldnaland – niðurstöður samkeppni
Mjólkurbikar KSÍ 2024
Frábær árangur hjá 4 flokki kvenna í knattspyrnu á Barcelona girls Cup:
  • HEIM
  • FRÉTTIR
  • MYNDIR
    • MYNDIR ÚR HVERFINU
  • HVERFIÐ OKKAR
    • VIÐBURÐIR
    • GALLERÍ KORPÚLFSSTAÐIR
    • ATVNNULÍFIÐ
      • VERSLUNARKJARNAR
        • BREKKUHÚSUM
        • HVERAFOLD
        • KORPUTORG
        • LAUFRIMA 21
        • SPÖNGIN
      • Sorpa
        • HVERFISSKIPULAG REYKJAVÍKUR
        • Hlutverk
        • Pappír er ekki rusl
    • FÉLAGASAMTÖK
      • KORPÚLFAR – FÉLAG ELDRI BORGARA Í GRAFARVOGI
      • SKÁTARNIR
    • GRAFARVOGSKIRKJA
      • Fermingar 2020
      • KIRKJUBYGGINGIN
      • LOGAFOLD SAFNAÐARBLAÐ
    • GÖNGU OG HJÓLALEIÐIR
    • HVERFISRÁÐ
      • HVERFIÐ Í TÖLUM
    • Heilsugæsla í Grafarvogi
    • ÍTR
      • GUFUNESBÆR
    • KORT AF GRAFARVOGI
    • MENNING OG LISTIR
      • KARLAKÓR GRAFARVOGS
      • MENNINGARHÚS SPÖNGINNI
    • SAGA GRAFARVOGS
      • KORPÚLFSSTAÐIR
    • SKÓLARNIR Í GRAFARVOGI
      • FÉLAGSMIÐSTÖÐVAR
      • FRAMHALDSSKÓLAR
      • FRÍSTUNDAHEIMILI
      • HEIMILI OG SKÓLI – LANDSSAMTÖK FORELDRA
        • FORELDRASÁTTMÁLINN
      • LEIK- OG GRUNNSKÓLAR
      • TÓNLISTARSKÓLINN
      • TÓNSKÓLI HÖRPUNNAR
    • STOLT GRAFARVOGS
    • ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐVAR
      • DAGFORELDRAR
        • DAGFORELDRAR Í HVERFINU
      • FÉLAGSMIÐSTÖÐ Í SPÖNG
      • ELDRI BORGARAR
      • FERÐAÞJÓNUSTA FATLAÐS FÓLKS
      • FÉLAGSLEG RÁÐGJÖF
      • FÉLAGSLEGAR ÍBÚÐIR
      • FJÁRHAGSAÐSTOÐ
      • SÉRFRÆÐIAÐSTOÐ VIÐ GRUNNSKÓLA
      • SKAMMTÍMAVISTUN ÁLFALAND
  • AÐSENT EFNI
    • DALE CARNEGIE
      • NÆSTA KYNSLÓÐ
    • TAPAÐ – FUNDIÐ
    • JÓLIN Í GRAFARVOGINUM
  • ÍÞRÓTTIR
    • FJÖLNIR
      • Sumarnámskeið 2019
      • Sumarnámskeið 2018
      • Sumarnámskeið 2016
    • GOLFKLÚBBUR REYKJAVÍKUR – KORPA
    • ÍÞRÓTTIR OG ÚTIVERA
    • GRAFARVOGSLAUG
      • ALMENNAR UPPLÝSINGAR
  • UM OKKUR

Aðsent efni

Andri Freyr Jónsson úr Keilufélagi Reykjavíkur er RIG meistari í keilu árið 2021

05 feb 2021
Baldvin
0
Egilshöll, Grafarvogur, Keila, Rig 2021

Andri Freyr sigraði Hafþór Harðarson úr ÍR í úrslitum. Forkeppnin í keilunni hófst í gær þar sem en í dag réðst það hvaða fjórir keilarar kepptu til úrslita í kvöld. Það voru þeir Andri, Hafþór, Adam Pawel Blaszczak úr ÍR og Jón Ingi Ragnarsson úr KFR. Í úrslitunum féll svo einn úr í hverjum leik þar til einn stóð eftir sem sigurvegari. Andri Freyr og Hafþór sem léku til úrslita. Leikurinn var jafn en þreyta var farin að segja til sín í lokaleiknum. Andri Freyr vann að lokum en hann hefur ekki unnið Reykjavíkurmeistaratitilinn í keilu áður.



Email, RSS Follow

Setningarhátíð Lífshlaupsins á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands

03 feb 2021
Baldvin
0
Grafarvogur, Hreyfing, Krakkar, Lífshlaup ÍSÍ, Rimaskóli
  • Setningarhátíð Lífshlaupsins fór fram í morgun í  Rimaskóla í Grafarvogi. 
  • Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdarstjóri ÍSÍ og Þóranna Rósa Ólafsdóttir skólastýra ávörpuðu gesti.  
  • Jónína Ómarsdóttir, íþróttakennari stjórnaði þrautabraut sem ræðumenn, skólastýra og nemendur tóku þátt í. Blossi lukkudýr ÍSÍ hvatti keppendur áfram og var stemningin gríðarlega góð.

Mikil gleði ríkti í Rimaskóla í morgun þegar Lífshlaupið var ræst í fjórtánda sinn. Þóranna Rósa Ólafsdóttir skólastýra bauð gesti velkomna. Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdarstýra ÍSÍ ávarpaði svo gesti ásamt þeim Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra og Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra. Að lokum kepptu ræðumenn og skólastýra í skemmtilegri þrautabraut ásamt nemendum undir stjórn Jónínu Ómarsdóttur íþróttakennara skólans. Blossi, lukkudýr ÍSÍ mætti á svæðið öllum til mikillar ánægju.

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna með það að markmiði að hvetja landsmenn til að gera hreyfingu að föstum lið í lífi sínu, hvort sem er í frítímanum, í vinnunni, í skólanum eða við val á ferðamáta. Lífshlaupið er góður vettvangur fyrir þá sem vilja byrja að hreyfa sig eða eru nú þegar að hreyfa sig reglulega og vilja skrá hreyfinguna markvisst, hafa yfirsýn og setja sér markmið. Auk þess að hvetja til hreyfingar daglega þá skapar verkefnið skemmtilega stemningu á vinnustöðum og í skólum sem keppa sína á milli og innanhúss.

Nýjung í ár er smáforrit Lífshlaupsins sem finna má bæði í App Store og Play Store undir nafninu Lífshlaupið. Í því má skrá alla sína daglegu hreyfingu á afar einfaldan hátt.

Nánari upplýsingar um Lífshlaupið og skráningu gefur Hrönn Guðmundsdóttir, sviðsstjóri Almenningsíþróttasviðs ÍSÍ, á hronn@isi.is, eða í síma: 514-4000.

Vefsíða: https://lifshlaupid.is/


Email, RSS Follow

Sigursælar Rimaskólastúlkur á Íslandsmóti grunnskóla í stúlknaflokki 2021

02 feb 2021
Baldvin
0
Grafarvogur, Skáksveit Rimaskóla, stúlkur

Rúmlega 20 stúlkur frá RImaskóla tefldu fyrir hönd skólans á Íslandsmóti grunnskóla, stúlknaflokki laugardaginn 30. janúar. Mótið var haldið að Faxafeni 12 þar sem eru aðsetur TR og Skáksambands Íslands. Góð þátttaka var á mótinu, 26 skáksveitir og þar af 7 frá Rimaskóla eða 27% allra skáksveita. Keppt var um 10 verðalaunagripi, gull, silfur og brons í þremur aldursflokkum. Okkar stúlkur stóðu sig frábærlega og unnu til 5 verðlauna eða 50% allra verðlauna sem í boði voru.

Yngstu stúlkurnar í 2. bekk urðu í 3. sæti á sínu fyrsta móti og komu sjálfum sér og öðrum skemmtilega á óvart. Mesta breiddin og sterkustu skáksveitir Rimaskóla voru í flokknum 3. – 5. bekkur. Skólinn var þarna með 4 sterkar skáksveitir sem lentu í 2., 3., 5. og 6. sæti af 15 sveitum. Í elsta flokknum 6. – 10. bekk lentu A og B sveitir Rimaskóla í 2. og 4. sæti þrátt fyrir forföll tveggja keppenda á síðustu stundu.

Það er sannarlega stelpuskákæði í Rimaskóla og sést það best af fjölda þeirra sem mæta í skákkennslu til Björns Ívars á mánudögum og á skákæfingar Fjölnis á fimmtudögum. Liðsstjórar Rimaskóla á Íslandsmótinu voru þau Helgi Árnason, Hrund Hauksdóttir og Valgerður Jóhannesdóttir.


Email, RSS Follow

Verður Vogurinn svartur og bleikur eða gulur og blár?

25 jan 2021
Baldvin
0
Fjölnir, Grafarvogur, Handbolti, Vængir, Vogurinn svartur

Verður Vogurinn svartur og bleikur eða gulur og blár?

Þessu verður svarað þriðjudaginn 26. janúar þegar Vængir Júpíters og Fjölnir mætast í sannkölluðum baráttuslag um Voginn.

Leikurinn verður að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Vængir Júpíters TV.

Þessi leikur verður einnig styrktarleikur en leikmaður sem tengist báðum liðum missti nýverið nákominn aðstandanda og hafa liðin ákveðið að styrkja Píeta samtökin að þessu sinni.

Leikmenn, þjálfarar og stjórnarmenn munu leggja þessu lið með þvi að styrkja sem um nemur einum aðgangsmiða á leik eða 1.500 kr. Þá munu Vængir Júpíters leggja söfnuninni lið með 50.000 kr. framlagi.

Við hvetjum alla, stóra sem smáa, fyrirtæki og einstaklinga til að styrkja þetta mikilvæga málefni og fylgjast með þessum spennandi handboltaleik í beinni! Við tökum við frjálsum framlögum og bendum á styrktarreikning Fjölnis og Vængja: 0133-15-200680, kt. 631288-7589. Einnig er hægt að kauða miða í gegnum Aur app í síma 664 5206 eða hafa samband við vaengirjupiters.handbolti@gmail.com.

Leikmenn og starfsmenn beggja liða munu einnig heiðra minningu allra sem hafa fallið fyrir eigin hendi með sorgarböndum og einnar mínútu þögn fyrir leik.

Viðburður á Facebook

Með Fjölniskveðju,

Virðing – Heilbrigði – Samkennd – Metnaður

Email, RSS Follow

Gefðu upplifun í gjöf.

24 jan 2021
Baldvin
0
Egilshöll, Fríðindaklúbbur Sambíó, Gjafabréf í Sambíó, Grafarvogur, Sambíó Egilshöll

Í miðasölum Sambíóanna og á www.sambioin.is er hægt að kaupa gjafabréf fyrir bíómiða, og popp og gos. Gjafabréfin eru tilvalin afmælisgjöf eða fyrir hópefli hjá fyrirtækinu þínu.

Sambíóin – Þar sem gaman er að vera.


Email, RSS Follow

BÓNDADAGSTILBOÐ Í SAMBÍÓUNUM EGILSHÖLL!

22 jan 2021
Baldvin
0
Bíó, Egilshöll, Sambíó Egilshöll

Í tilefni af bóndadeginum og upphafi þorra færð þú tvo miða á verði eins í Sambíóunum Egilshöll ef þú notar tilboðskóðann “bondi21” í miðasölu eða á sambio.is. Kjörið tækifæri til að gleðja bóndann. Tilboðið gildir á allar myndir helgina 22-24. janúar. Tryggðu þér miða og gleðilega hátíð!#godaskemmtun

Email, RSS Follow

Rafmögnuð tónlist – smiðja með Auði Viðarsdóttur

16 jan 2021
Baldvin
0
Auður Viðarsdóttir, Grafarvogur, Menningarhús Spöngin, Spöngin

Skráning er í smiðjuna og er sóttvarnarreglum fylgt í hvívetna. Sjá nánar hér. 

Dreymir þig um að semja tónlist? Viltu læra hvernig að gera það á spjaldtölvu?
Tónlistarkonan Auður Viðarsdottir (rauður) heldur tónlistarsmiðju þar sem hún kynnir grunnatriði raftónlistar í forritinu Soundtrap. Forritið er vinsælt og auðvelt í notkun, það hentar vel til að búa til góða tónlist! Þátttakendur þurfa ekki að hafa neina reynslu af forritinu eða formlega tónlistarmenntun.

Smiðjan hentar 10-13 ára.

Ókeypis aðgangur.
Spjaldtölvur á staðnum.
Skráning nauðsynleg.
Takmörkuð pláss í boði.

Sjá viðburð á facebook.

Nánari upplýsingar veitir:
Justyna Irena Wilczyńska
justyna.irena.wilczynska@reykjavik.is | 411 6230


Email, RSS Follow

Ferðaskrifstofan VITA og knattspyrnudeild Fjölnis gera með sér samstarfssamning til þriggja ára.

13 jan 2021
Baldvin
0
Fjölnir knattspyrna, Fótbolti, Grafarvogur, Vita ferðir

Ferðaskrifstofan VITA og knattspyrnudeild Fjölnis gera með sér samstarfssamning til þriggja ára.

Það er einkar ánægjulegt að tilkynna að VITA verður einn af aðalstyrktaraðilum knattspyrnudeildar Fjölnis og styður þar með við mikilvægt íþróttastarf í hverfinu.

Markmið VITA er að bjóða upp á fjölbreytt úrval ferða frá Íslandi, góða þjónustu, úrval hótela og flugkost á samkeppnishæfu verði. VITA býður upp á margskonar ferðir vítt og breitt um heiminn.

Smelltu hér til að skoða úrval ferða hjá VITA: https://tinyurl.com/y5lbh3sf.

#FélagiðOkkar

Ljósmynd: Eva Björg 

Email, RSS Follow

Fjölnir býður í handbolta

11 jan 2021
Baldvin
0
Dalhúsin, Egilshöll, Fjölnir handbolti, Grafarvogur, Handbolti, HM í handbolta

Í tilefni af því að HM í handbolta hefst í vikunni langar okkur að bjóða öllum krökkum að koma og prófa handbolta hjá okkur í Fjölni. Tilboðið gildir út janúar.Okkar frábæru þjálfarar taka vel á móti krökkunum !Sendið á handbolti@fjolnir.is ef þið hafið einhverjar spurningar um starfið.#FélagiðOkkar

Email, RSS Follow
« First‹ Previous567891011Next ›Last »
banner
banner
banner
banner
banner
banner

Gagnlegir tenglar

  • HEILSUGÆSLAN
  • MIÐGARÐUR
  • HVERFIÐ MITT
  • MOJE_S_SIEDZTWO
  • MANO_KAIMYNIST_JE
  • MY NEIGHBOURHOOD

Börnin okkar

  • FRAMHALDSSKÓLAR
  • GUFUNESBÆR
  • LEIK OG GRUNNSKÓLAR
  • SKÁTAFÉLAGIÐ HAMAR
  • TÓNLISTARSKÓLINN

GRAFARVOGSBÚAR Á FLICKR

Allur réttur áskilinn © 2024
www.grafarvogsbuar.is