• HEIM
  • HAFÐU SAMBAND
facebook
email
Helgihald kyrruviku og páska í Grafarvogskirkju
Fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur 12. mars 2025
Keldnaland – niðurstöður samkeppni
Mjólkurbikar KSÍ 2024
Frábær árangur hjá 4 flokki kvenna í knattspyrnu á Barcelona girls Cup:
  • HEIM
  • FRÉTTIR
  • MYNDIR
    • MYNDIR ÚR HVERFINU
  • HVERFIÐ OKKAR
    • VIÐBURÐIR
    • GALLERÍ KORPÚLFSSTAÐIR
    • ATVNNULÍFIÐ
      • VERSLUNARKJARNAR
        • BREKKUHÚSUM
        • HVERAFOLD
        • KORPUTORG
        • LAUFRIMA 21
        • SPÖNGIN
      • Sorpa
        • HVERFISSKIPULAG REYKJAVÍKUR
        • Hlutverk
        • Pappír er ekki rusl
    • FÉLAGASAMTÖK
      • KORPÚLFAR – FÉLAG ELDRI BORGARA Í GRAFARVOGI
      • SKÁTARNIR
    • GRAFARVOGSKIRKJA
      • Fermingar 2020
      • KIRKJUBYGGINGIN
      • LOGAFOLD SAFNAÐARBLAÐ
    • GÖNGU OG HJÓLALEIÐIR
    • HVERFISRÁÐ
      • HVERFIÐ Í TÖLUM
    • Heilsugæsla í Grafarvogi
    • ÍTR
      • GUFUNESBÆR
    • KORT AF GRAFARVOGI
    • MENNING OG LISTIR
      • KARLAKÓR GRAFARVOGS
      • MENNINGARHÚS SPÖNGINNI
    • SAGA GRAFARVOGS
      • KORPÚLFSSTAÐIR
    • SKÓLARNIR Í GRAFARVOGI
      • FÉLAGSMIÐSTÖÐVAR
      • FRAMHALDSSKÓLAR
      • FRÍSTUNDAHEIMILI
      • HEIMILI OG SKÓLI – LANDSSAMTÖK FORELDRA
        • FORELDRASÁTTMÁLINN
      • LEIK- OG GRUNNSKÓLAR
      • TÓNLISTARSKÓLINN
      • TÓNSKÓLI HÖRPUNNAR
    • STOLT GRAFARVOGS
    • ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐVAR
      • DAGFORELDRAR
        • DAGFORELDRAR Í HVERFINU
      • FÉLAGSMIÐSTÖÐ Í SPÖNG
      • ELDRI BORGARAR
      • FERÐAÞJÓNUSTA FATLAÐS FÓLKS
      • FÉLAGSLEG RÁÐGJÖF
      • FÉLAGSLEGAR ÍBÚÐIR
      • FJÁRHAGSAÐSTOÐ
      • SÉRFRÆÐIAÐSTOÐ VIÐ GRUNNSKÓLA
      • SKAMMTÍMAVISTUN ÁLFALAND
  • AÐSENT EFNI
    • DALE CARNEGIE
      • NÆSTA KYNSLÓÐ
    • TAPAÐ – FUNDIÐ
    • JÓLIN Í GRAFARVOGINUM
  • ÍÞRÓTTIR
    • FJÖLNIR
      • Sumarnámskeið 2019
      • Sumarnámskeið 2018
      • Sumarnámskeið 2016
    • GOLFKLÚBBUR REYKJAVÍKUR – KORPA
    • ÍÞRÓTTIR OG ÚTIVERA
    • GRAFARVOGSLAUG
      • ALMENNAR UPPLÝSINGAR
  • UM OKKUR

Aðsent efni

Stelpur! Komið í körfu – vinavika.

07 okt 2014
Baldvin
0
Aðsent efni, Barnastarf, Fjölnir körfubolti, Grafarvogur karfa, Stelpur í körfu

Stelpur í körfuboltaVinaæfingar fyrir 10-12 ára stelpur (2002-2004) verða
þriðjudaginn 7. október, miðvikudaginn 8. október og föstudaginn 10. október. Vinavikunni lýkur með pizzuveislu eftir síðustu æfinguna.
…
Það kostar ekkert að mæta á vinavikuna. Þó hér sé um að ræða vinaviku fyrir 10-12 ára stelpur þá hvetjum við allar stelpur til að koma í körfu. Æfingataflan er á fjolnir.is. Hér að neðan er æfingatafla 10-12 ára stúlknanna:

Mán: 17:00 – 18:00 Dalhús (þjálfari Moné)
Þri: 16:50 – 18:00 Vættaskóli Borgir (þjálfari Bonnie)
Mið: 14:30 – 15:20 Dalhús (þjálfari Bonnie)
Fös: 14:30 – 15:30 Dalhús (þjálfari Bonnie)

Á myndinni eru Bonnie og stelpurnar með bikar fyrir að vera Reykjavíkurmeistarar í haust.

Email, RSS Follow

Drengirnir í 7. bekk Rimaskóla sigra á Grunnskólamótinu

07 okt 2014
Baldvin
0
Egilshöll, Fótbolti, Grunnskólamót, Knattspyrna, Rimaskóli

GrunnskólamótGrunnskólamóti KRR í knattspyrnu í 7. og 10. bekk lauk með hreinum úrslitaleikjum í Egilshöll sl. laugardag. Drengirnir í 7. bekk Rimaskóla gerðu sér lítið fyrir og unnu mótið glæsilega og tryggðu sér titilinn Grunnskólameistarar KRR í knattspyrnu 2014. Í undanriðli fyrr í vikunni vann Rimaskóli alla þrjá leikina samtals 13 – 0 og í undanúrslitariðli á laugardagsmorgni unnu 7. bekkingar jafnaldra sína í Ártúns-og Vættaskóla. Það var loks í hreinum úrslitaleik við Kelduskóla í Grafravogi sem Rimaskóli tryggði sér sigurinn 3-2 þar sem okkar drengir skoruðu tvö síðustu mörkin á lokamínútunum. Grunnskólameistarar Rimaskóla eru þeir Gauti, Kristall Máni, Kristófer Halldór, Mikael Gunnar, Róbert Orri og Theodór Tristan í 7-EH og Aron Fannar, Darri Már og Jóhann Ágúst í 7-GÍA. Liðstjóri þeirra er Valdimar Stefánsson íþróttakennari skólans. (HÁ)

Email, RSS Follow

Við verðum í Pepsideildinni 2015

07 okt 2014
Baldvin
0
Aðsent efni, Fjölnir knattspyrna
IMG_7046

Mynd: Baldvin Örn Berndsen

Nú er það ljóst við verðum í deild þeirra bestu að ári. Strákarnir í meistaraflokknum vilja þakka ykkur Fjölnismönnum kærlega fyrir stuðningin í sumar. Stuðningur áhorfenda í lokaleikjunum var frábær og var virkilega gaman að sjá Grafarvoginn sameinast í kringum liðið okkar.

Takk fyrir okkur og sjáumst í Pepsideildinni næsta sumar.
Meistaraflokkur karla

 

 

Email, RSS Follow

Knattspyrna karla Fjölnir 3 – 0 ÍBV

04 okt 2014
Baldvin
0
Aðsent efni, Dalhús, Fjölnir knattspyrna, Pepsi Deildin

Fjölnir sigrar ÍBV 3-0 í blautum leik þar sem þeir Þórir, Bergsveinn og Ragnar skora mörkin.

Fjölnir áfram í Pepsi deilinni, til hamingju.

IMG_7071 IMG_7070 IMG_7069 IMG_7068 IMG_7067 IMG_7066 IMG_7065 IMG_7058 IMG_7059 IMG_7060 IMG_7061 IMG_7062 IMG_7063 IMG_7064 IMG_7057 IMG_7056 IMG_7055 IMG_7054 IMG_7053 IMG_7052 IMG_7051 IMG_7048 IMG_7047 IMG_7046

Email, RSS Follow

Handbolti karla Fjölnir 22-18 KR

04 okt 2014
Baldvin
0
Aðsent efni, Fjölnir handbolti, Grafarvogur.

Fjölnir - KR (9)Fjölnir 22-18 KR (10-9)
Mörk Fjölnis: Björgvin Rúnarson 5, Brynjar Loftsson, Sveinn Þorgeirsson og Kristján Örn Kristjánsson allir með 3, Sigurður Guðjónsson Aðalsteinn Aðalsteinsson og  Bergur Snorrason allir með 2, Breki Dagsson og Bjarki Lárusson 1 mark hvor.
Mörk KR: Finnur Jónsson 6, Jóhann Gunnarsson og Bjarni Jónasson 3, Pétur Gunnarsson, Arnar Agnarsson, Guðjón Drengsson, Hermann R. Björnsson, Fannar Kristmannsson og Sigurbjörn Markússon allir með 1.

Myndir: Þorgils G

 

 

Fjölnir - KR (18) Fjölnir - KR (19) Fjölnir - KR (12) Fjölnir - KR (5) Fjölnir - KR (4) Fjölnir - KR (11) Fjölnir - KR (10) Fjölnir - KR (16) Fjölnir - KR (17) Fjölnir - KR (3) Fjölnir - KR (1) Fjölnir - KR (2) Fjölnir - KR (15) Fjölnir - KR (7) Fjölnir - KR (14) Fjölnir - KR (6) Fjölnir - KR (8) Fjölnir - KR (9)

Email, RSS Follow

Laugardagur kl. 13.30 Fjölnisvöllur Fjölnir – ÍBV

03 okt 2014
Baldvin
0
Aðsent efni, Dalhús, Fjölnir fótbolti, Fjölnir knattspyrna, Grafarvogur., Pepsi Deildin
IMG_7004

Mynd: Baldvin Örn Berndsen

Þá er komið að seinustu umferðinni í Pepsideildinni í sumar og má með sanni segja að allt sé undir hjá okkur Fjölnismönnum. Andstæðingar á morgun (laugardag) eru ÍBV frá Vestmannaeyjum og hefst leikurinn kl. 13.30 á Fjölnisvelli.

Staðan er einföld, við þurfum stig til að tryggja veru okkar í deild þeirra bestu á næsta ári. Um miðbik móts var mikið talað af kumpánum út í bæ hve fáa stuðningsmenn Fjölnir ætti en það hefur svo sannarlega breyst í undanförnum leikjum, mikill fjöldi Fjölnismanna hefur mætt og látið vel í sér heyra. Þetta hafa strákarnir svo sannarlega kunnað að meta og eru þeir staðráðnir að gera allt til að tryggja okkur í Pepsi að ári.

Staðan á leikmannahópnum er góð og mikill vilji til að klára þetta um helgina. Gunnar Már kemur aftur inní hópinn eftir leikbann en Atli Þorbergs verður í leikbanni eftir rauða spjaldið gegn Fylki.

Upphitum fyrir leik.
Fjölnismenn eru hvattir til að mæta í Dalhúsin (hátíðarsal) kl. 12.30 en þar verður boðið uppá bakkelsi og grillaðir ljúffengir hamborgarar + Pepsi á vægu verði.

Hér má sjá stöðuna í deildinni

 

 

Email, RSS Follow

Íslandsmót skákfélaga 2014-15

02 okt 2014
Baldvin
0
Aðsent efni, Barnastarf, Íslandsmót skákfélaga, Rimaskóli, Skák, Skáksveit Rimaskóla

Fyrri hluti: 2.-5. október 2014 í Rimaskóla

Mótið fer fram í Rimaskóla í Reykjavík. 1. umferð (eingöngu 1.deild) mun hefjast kl 19.30 fimmtudaginn 2. október.

Aðrar deildir munu hefja taflmennsku föstudaginn 3.október kl 20.00 og síðan tefla laugardaginn 4.október kl 11.00 og kl 17.00 sama dag.

Síðasta umferð í fyrri hlutanum hefst kl 11.00 sunnudaginn 5. október.

Umhugsunartími er 90 mín. á skákina + 30 sek viðbótartími bætist við eftir hvern leik.

Vakin er athygli á eftirfarandi texta í 19.grein skáklaga: „Fyrir upphaf 1.umferðar fyrri hluta ÍS skulu félögin skila inn styrkleikaröðuðum lista allra þeirra keppenda sem þeir hyggjast nota í keppninni“

Reglur:

 Skáklög SÍ (16-21.grein á við Íslandsmót skákfélaga )

Reglugerð um Íslandsmót skákfélaga

Reglugerð um Keppendaskrá Skáksambandsins

 

Email, RSS Follow

Guðsþjónustur sunnudaginn 5. október

01 okt 2014
Baldvin
0
Aðsent efni, Bænahald, Bænir, Grafarvogskirkja, Grafarvogur.

Kirkjan

Messa kl. 11:00 – Séra Guðrún Karls Helgudóttir prédikar og þjónar fyirr altari ásamt messuþjónum og fermingarbörnum. Kirkjukórinn leiðir Life-after-death-ngtrends-com-1söng. Organisti er Hákon Leifsson.
Sunnudagaskóli kl 11:00 – Umsjón hefur Þóra Björg Sigurðardóttir. Undirleikari er Stefán Birkisson.

Kirkjuselið í Spöng

Guðsþjónusta kl. 13:00 – Séra Sigurður Grétar Helgason prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Vox Populi syngur og Hilmar Örn Agnarsson er organisti.
Sunnudagaskóli kl. 13:00 – Umsjón hefur Ásthildur Guðmundsdóttir. Undirleikari er Stefán Birkisson.
Kirkjukaffi í matsalnum.

Velkomin!

Email, RSS Follow

Forvarnardagurinn haldinn í dag

01 okt 2014
Kristjan Sigurdsson
0
Aðsent efni, Barnastarf, Forvarnardagurinn

Taktu þáttForvarnardagurinn er haldinn í dag, miðvikudaginn 1. október, í grunnskólum og framhaldsskólum landsins. Dagurinn er helgaður nokkrum heillaráðum sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum, ráðum sem eiga erindi við allar fjölskyldur í landinu. Forvarnardagurinn er haldin að frumkvæði forseta Íslands í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga, Ungmennafélags Íslands, Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Bandalag íslenskra skáta, Reykjavíkurborg, Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Verkefnið er stutt af lyfjafyrirtækinu Actavis.

Íslenskar rannsóknir sýna að þeir unglingar sem verja minnst klukkustund á dag með fjölskyldum sínum eru síður líklegir til að hefja neyslu fíkniefna. Að sama skapi sýna niðurstöður að mun ólíklegra sé að ungmenni sem stunda íþróttir og annað skipulagt æskulýðsstarf, falli fyrir fíkniefnum. Í þriðja lagi sýna rannsóknirnar fram á að því lengur sem ungmenni bíða með að hefja áfengisneyslu, þeim mun ólíklegra er að þau neyti síðar fíkniefna.

Niðurstöðurnar byggja á rannsóknum vísindamanna við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík sem hafa um árabil rannsakað áhættuhegðun ungmenna og hafa þær vakið alþjóðlega eftirtekt.

Email, RSS Follow
« First‹ Previous145146147148149150151Next ›Last »
banner
banner
banner
banner
banner
banner

Gagnlegir tenglar

  • HEILSUGÆSLAN
  • MIÐGARÐUR
  • HVERFIÐ MITT
  • MOJE_S_SIEDZTWO
  • MANO_KAIMYNIST_JE
  • MY NEIGHBOURHOOD

Börnin okkar

  • FRAMHALDSSKÓLAR
  • GUFUNESBÆR
  • LEIK OG GRUNNSKÓLAR
  • SKÁTAFÉLAGIÐ HAMAR
  • TÓNLISTARSKÓLINN

GRAFARVOGSBÚAR Á FLICKR

Allur réttur áskilinn © 2024
www.grafarvogsbuar.is