• HEIM
  • HAFÐU SAMBAND
facebook
email
Dagur gegn einelti – Hvatningarverðlaun
Grafarvogskirkja
Korpúlfar félag eldri borgara í Grafarvogi
Árgangamót Fjölnis í knattspyrnu
Ungmennafélagið Fjölnir 
  • HEIM
  • FRÉTTIR
  • MYNDIR
    • MYNDIR ÚR HVERFINU
  • HVERFIÐ OKKAR
    • VIÐBURÐIR
    • GALLERÍ KORPÚLFSSTAÐIR
    • ATVNNULÍFIÐ
      • VERSLUNARKJARNAR
        • BREKKUHÚSUM
        • HVERAFOLD
        • KORPUTORG
        • LAUFRIMA 21
        • SPÖNGIN
      • Sorpa
        • HVERFISSKIPULAG REYKJAVÍKUR
        • Hlutverk
        • Pappír er ekki rusl
    • FÉLAGASAMTÖK
      • KORPÚLFAR – FÉLAG ELDRI BORGARA Í GRAFARVOGI
      • SKÁTARNIR
    • GRAFARVOGSKIRKJA
      • Fermingar 2020
      • KIRKJUBYGGINGIN
      • LOGAFOLD SAFNAÐARBLAÐ
    • GÖNGU OG HJÓLALEIÐIR
    • HVERFISRÁÐ
      • HVERFIÐ Í TÖLUM
    • Heilsugæsla í Grafarvogi
    • ÍTR
      • GUFUNESBÆR
    • KORT AF GRAFARVOGI
    • MENNING OG LISTIR
      • KARLAKÓR GRAFARVOGS
      • MENNINGARHÚS SPÖNGINNI
    • SAGA GRAFARVOGS
      • KORPÚLFSSTAÐIR
    • SKÓLARNIR Í GRAFARVOGI
      • FÉLAGSMIÐSTÖÐVAR
      • FRAMHALDSSKÓLAR
      • FRÍSTUNDAHEIMILI
      • HEIMILI OG SKÓLI – LANDSSAMTÖK FORELDRA
        • FORELDRASÁTTMÁLINN
      • LEIK- OG GRUNNSKÓLAR
      • TÓNLISTARSKÓLINN
      • TÓNSKÓLI HÖRPUNNAR
    • STOLT GRAFARVOGS
    • ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐVAR
      • DAGFORELDRAR
        • DAGFORELDRAR Í HVERFINU
      • FÉLAGSMIÐSTÖÐ Í SPÖNG
      • ELDRI BORGARAR
      • FERÐAÞJÓNUSTA FATLAÐS FÓLKS
      • FÉLAGSLEG RÁÐGJÖF
      • FÉLAGSLEGAR ÍBÚÐIR
      • FJÁRHAGSAÐSTOÐ
      • SÉRFRÆÐIAÐSTOÐ VIÐ GRUNNSKÓLA
      • SKAMMTÍMAVISTUN ÁLFALAND
  • AÐSENT EFNI
    • DALE CARNEGIE
      • NÆSTA KYNSLÓÐ
    • TAPAÐ – FUNDIÐ
    • JÓLIN Í GRAFARVOGINUM
  • ÍÞRÓTTIR
    • FJÖLNIR
      • Sumarnámskeið 2019
      • Sumarnámskeið 2018
      • Sumarnámskeið 2016
    • GOLFKLÚBBUR REYKJAVÍKUR – KORPA
    • ÍÞRÓTTIR OG ÚTIVERA
    • GRAFARVOGSLAUG
      • ALMENNAR UPPLÝSINGAR
  • UM OKKUR

Aðsent efni

Prestastefna var sett í Grafarvogskirkju í dag, þriðjudaginn 14. apríl kl. 18.

14 apr 2015
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Bænahald, Bænir, Grafarvogskirkja, Prestar, Prestastefna

Prestastefna 2015 (29)Í setningarræðu sinni ræddi biskup Íslands m.a. um fækkun í þjóðkirkjunni og setti hana í samhengi við þróunina í systurkirkju hennar í Svíþjóð:
„Frá því þjóðkirkjan varð sjálfstæð árið 1998 hefur meðlimum hennar fækkað. Þeim fjölgaði um rúmlega 8000 fyrstu tólf árin  en hefur fækkað um rúmlega 10000 á undanförnum árum. Niðurstaðan er heildarfækkun um 2150 meðlimi.
Árið 2014 fækkaði um 714 manns í þjóðkirkjunni. Til samanburðar fækkaði um 60000 meðlimi í sænsku kirkjunni. Ef tekið er tillit til stærðar kirknanna þá er fækkunin hér á Íslandi tæpur þriðjungur af því sem er í systurkirkjunni.  Þróunin í kirkjunum er samt svipuð: Meðlimunum fækkar.“

Biskup ræddi einnig traust til þjóðkirkjunnar, það hefur aukist frá 2012 og mælist nú meira en traust til borgarstjórnar og Alþingis.

„Tölulegar upplýsingar gefa einnig til kynna að traustið á kirkjunni er að aukast eins og áður sagði. Það mælist nú 36%. Hæst hefur það mælst rúm sextíu prósent árið 1999 og lægst 28% árið 2012. Síðan þá hefur það aukist. Við vitum af öðrum könnunum að meira traust mælist til sóknarpresta og starfsins í sóknum þjóðkirkjunnar.  Traustið skilst kannski best með því að skoða það í samhengi.  Þjóðkirkjunni er treyst betur en Borgarstjórn Reykjavíkur, Seðlabankanum og Alþingi.  Það erum við þakklát fyrir.“

Þá ræddi biskup um tjáningarfrelsi þeirra sem þjóna í kirkjunni:

„Skerðir vígslan tjáningarfrelsið?  Siðareglurnar svara þessu að einhverju leyti.  Úrskurðarnefnd hefur fjallað um eitt slíkt mál og komist að þeirri niðurstöðu að siðareglur hafi verið brotnar þegar færsla var rituð á fésbókarsíðu en hún var hluti af umræðu sem átti sér stað á síðunni. „Úrskurðarnefnd komst að þeirri niðurstöðu að það bryti gegn 2. og 13. grein siðareglna þjóðkirkjunnar að vígður þjónn bæri á borð óstaðfestan orðróm.“ Hér túlkar úrskurðarnefndin siðareglurnar með skýrum og leiðbeinandi hætti. Við skulum minnast þess þegar við látum frá okkur texta að „grundvallarregla mannlegra samskipta er gullna reglan: „Allt sem þér viljið, að aðrir menn geri yður, það skuluð þér og þeim gera.” (Matt. 7,12)  Starfsfólk og vígðir þjónar kirkjunnar hafa þá reglu umfram allt að leiðarljósi“ eins og segir í formála að siðareglunum.“

Setningarræðu biskups má nálgast í heild sinni hér: http://biskup.is/

 

Prestastefna 2015 (2) Prestastefna 2015 (6) Prestastefna 2015 (23) Prestastefna 2015 (24) Prestastefna 2015 (25) Prestastefna 2015 (30)

 

Prestastefna 2015

Knattspyrnudeild Fjölnis og TM gera með sér samstarfssamning

13 apr 2015
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Fjölnir, TM

Arnheiður Leifsdóttir frá TM og Guðmundur L Gunnarsson framkvæmdastjóri Fjölnis handsala samninginn

Knattspyrnudeild Fjölnis og TM hafa gert með sér samstarfssamning sem felur í sér stuðning TM við deildina á komandi keppnistímabili.

Fjölnir mun hlutast til um að bjóða félagsmönnum og forráðamönnum iðkenda tækifæri á að fá tilboð í sínar tryggingar ef áhugi er fyrir því og þannig styrkja starf félagsins í leiðinni.

Samningurinn var undirritaður í höfuðstöðvum TM af Arnheiði Leifsdóttur verkefnisstjóra markaðs- og kynningarmála og Guðmundi L Gunnarssyni framkvæmdastjóra Fjölnis.

Við væntum mikils af samstarfi félaganna og að Grafarvogsbúar nýti sér það að fá tilboð í sínar tryggingar og styðja þar með félagið í leiðinni.

Á næstu dögum munum við senda og dreifa blaði sem bíður öllum uppá að fá tilboð í sínar tryggingar frá TM og í leiðinni að styðja við starfið hjá Fjölni.

Miðgarðsmótið í skák haldið í 10. sinn. Rimaskóli hefur alltaf sigrað

12 apr 2015
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Barnastarf, Miðgarðsmót í skák, Skák

Miðgarðsmótið 2015Árið 2006 kom Miðgarður, þjónustumiðstöð Grafarvogs, í samstarfi við Skákdeild Fjölnis á skákmóti á milli grunnskóla hverfisins. Mótið hefur allt frá upphafi verið afar vinsælt og um 100 nemendur tekið þátt í því hverju sinni.

Miðgarðsmótið fór fram í tíunda sinn föstudaginn 10. apríl og líkt og í hin níu skiptin sigraði skáksveit Rimaskóla öruggan sigur. Alls mættu 13 skáksveitir til leiks frá fjórum grunnskólum.

Að þessu sinni voru skáksveitir frá Rimaskóla og Foldaskóla áberandi í efstu sætum en eina sveit Kelduskóla náði 5 sæti. Rimaskóli og Foldaskóli sendu flestar skáksveitir til leiks. Eina stúlknasveitin kom frá Rimaskóla, Íslandsmeistarasveitin 2015 sem lenti í 3. – 4. sæti ásamt efstu sveit Foldaskóla.

Tvær efstu sveitirnar komu frá Rimaskóla og var önnur þeirra eingöngu skipuð stórefnilegum strákum í 4. bekk. Tefldar voru sex umferðir og í skákhléi bauð Miðgarður upp á ljúffengar veitingar. Landsbankinn, útibúið Vínlandsleið, var styrktaraðili mótsins annað árið í röð og fengu allir þátttakendur viðurkeningu frá bankanum, bíómiða í SAM-bíóum.

Skákstjórar voru þeir Sigurgeir Birgisson frá Miðgarði og Helgi Árnason formaður skákdeildar Fjölnis. Mótið tókst mjög vel í alla staði enda eru grunnskólakrakkar í Grafarvogi orðnir þaulvanir að taka þátt í skákmótum.

Í lok mótsins fengu lið Rimaskóla afhenta glæsilega bikara frá Miðgarði, annan til eignar en hinn farandgrip sem varðveitist 10. árið í röð í skólanum.

 

Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (4)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (5)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (7)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (8)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (9)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (10)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (11)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (12)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (14)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (16)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (18)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (20)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (21)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (23)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (24)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (25)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (26)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (27)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (28)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (29)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (30)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (32)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (33)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (34)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (35)_vefur

Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (102)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (104)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (106)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (116)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (117)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (119)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (120)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (121)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (123)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (124)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (125)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (126)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (127)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (128)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (129)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (131)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (132)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (133)_vefur Miðgarðsmót 2015 Rimaskóla (134)_vefur

Höfuborgarbúar jákvæðir gagnvart ferðamönnum

12 apr 2015
Kristjan Sigurdsson
0

FerðamennAðeins 2% íbúa á höfuðborgarsvæðinu eru neikvæð gagnvart ferðamönnum. Mikill meirihluti íbúa eða 84,5% er mjög jákvæður gagnvart ferðamönnum eða frekar jákvæður en 13,1 eru í meðallagi jákvæðir. Þetta kemur fram í viðhorfskönnun sem Höfuðborgarstofa lét gera.

Íbúar á höfuðborgarsvæðinu eru almennt jákvæðir gagnvart erlendum ferðamönnum samkvæmt niðurstöðum viðhorfskönnunar sem var lögð fyrir íbúa í öllum póstnúmerum á höfuðborgarsvæðinu dagana 19. – 30. mars s.l. Könnunin er liður í vinnu við endurskoðun á aðgerðaáætlun ferðamálastefnu Reykjavíkurborgar til ársins 2020 sem nú stendur yfir. Niðurstöður könnunarinnar voru kynntar á málþingi í Hörpu en Maskína sá um framkvæmd og úrvinnslu könnnunarinnar.

Aðeins 2,3% íbúa á höfuðborgarsvæðinu segjast vera neikvæð gagnvart ferðamönnum á höfuðborgarsvæðinu, þar af segjast 2% fremur neikvæð og 0,3% mjög neikvæð. Þetta hlutfall er 3,1% í póstnúmerinu 101 í miðborg Reykjavíkur þar sem ferðamannafjöldinn er mestur.

Þá telja 91,8% íbúa að erlendir ferðamenn á höfuðborgarsvæðinu séu fremur eða mjög vinsamlegir í samskiptum við íbúa. Aðeins 0,7% telja þá óvinsamlega og 7,5% í meðallagi. Athyglisvert er að bera þessar tölur saman við hversu gestrisna íbúar telja sjálfa sig vera gagnvart erlendum ferðamönnum en 61,9% telja íbúa mjög eða fremur gestrisna. Þá segja 6,7% íbúa mjög eða fremur ógestrisna og 31,4% segja í meðallagi.

„Þetta eru góðar fréttir því þetta sýnir að viðhorf okkar íbúanna er mun jákvæðara gagnvart ferðamönnum en margir hafa ef til vill óttast miðað við umræðuna,” segir Einar Þór Bárðarson, forstöðumaður Höfuðborgarstofu. „Niðurstöður könnunarinnar gefa okkur vísbendingar um þolmörk í samfélaginu og munu reynast mikilvægt innlegg í þá vinnu sem Reykjavíkurborg er að vinna um þessar mundir við endurskoðun á aðgerðaáætlun ferðamálastefnunnar til ársins 2020. Tilgangur þeirrar vinnu er einmitt að móta stefnuna með framsýn og skynsemi að leiðarljósi.”

Viðhorf til erlendra ferðamanna mars 2015

Fjölnir lagði Selfoss í fyrsta leik í umspili

10 apr 2015
Baldvin Berndsen
0
Aðsent efni, Dalhús, Fjölnir, Fjölnir handbolti, Grafarvogur., Handbolti

DSC_4095Selfoss og Fjölnir spiluðu í Grafavogi þar sem Selfyssingarnir byrjuðu leikinn betur en heimamenn í Fjölni tóku við sér og fóru í hálfleik með þriggja marka forskot, 16-13. Í síðari hálfleik var mikil spenna framan af en Fjölnismenn voru þó ögn sterkari. Á endanum sigraði Fjölnir leikinn, 28-25.

Næstu leikir fara fram á mánudagskvöldið en það lið sem vinnur fyrr til tvo leiki mun spila til úrslita um að komast í Olís-deild karla.

 

 

Úrslit og markaskorun:

Fjölnir 28-25 Selfoss (16-13)

Mörk Fjölnir: Kristján Örn Kristjánsson 9, Breki Dagsson 4, Brynjar Loftsson 4, Sveinn Þorgeirsson 3, Sigurður Guðjónsson 3, Bergur Snorrasson 2, Björgvin Páll Rúnarsson 1, Arnar Ingi Guðmundsson 1, Unnar Arnarsson 1.
Varin skot: Ingbar Kristinn Guðmundsson 19 skot varin
Mörk Selfoss: Hergeir Grímsson 7, Sverrir Pálsson 6, Teitur Örn Einarsson 4, Guðjón Ágústsson 3, Árni Guðmundsson 2, Andri Már Sveinsson 2, Alexander Már Egan 1.
Varin skot: 10 skot

 

DSC_3950 DSC_3954 DSC_3961 DSC_3971 DSC_3984 DSC_3985 DSC_3987 DSC_4003 DSC_4007 DSC_4009 DSC_4015 DSC_4016 DSC_4018 DSC_4020 DSC_4025 DSC_4028 DSC_4030 DSC_4032 DSC_4050 DSC_4054 DSC_4066 DSC_4068 DSC_4076 DSC_4083 DSC_4084 DSC_4088 DSC_4098 DSC_4099 DSC_4104

 

 

Nýtt námskeið í fullorðinsfimleikum

10 apr 2015
Kristjan Sigurdsson
0

Fimleikar fullorðinnaNýtt námskeið í fullorðinsfimleikunum hefst mánudaginn 13.apríl og stendur í 6 vikur. Námskeiðið fer fram í aðstöðu fimleikadeildarinnar í Egilshöllinni og er fyrir 18. ára og eldri. Æfingarnar eru á mánudögum 20:00-21:30 og á miðvikudögum frá 20:30-22:00. Þú þarft alls ekki að vera fyrrverandi fimleikastjarna til þess að vera með. Æfingarnar henta flest öllum.

Tímarnir byrja á upphitun, þreki og teygjum og svo er farið út í léttar fimleikaæfingar. Fimleikar eru frábær alhliða hreyfing og henta vel fyrir þá sem vilja.

Fyrsti Íslandsmeistarinn úr Fjölni í áhaldafimleikum karla

06 apr 2015
Kristjan Sigurdsson
0

Sigurður AriÍslandsmót í þrepum fór fram helgina fyrir páska og átti fimleikadeild Fjölnis flotta fulltrúa í stúlkna og drengja keppni. Allir keppendur skiluðu góðum keppnisæfingum og skemmtu sér vel á glæsilegu móti sem var í umsjón fimleikadeild Ármanns.

Upp úr stóð frammistaða Sigurðar Ara Stefánssonar sem varð Íslandsmeistari í 5.þrepi karla, en þetta er fyrsti íslandsmeistaratitill deildarinnar í áhaldafimleikum karla. Sigurður er ungur og efnilegur fimleikamaður sem á svo sannarlega bjarta framtíð fyrir sér og verður fróðlegt að fylgjast með honum áfram næstu árin.

Fjölmenningardagurinn haldinn hátíðlegur

06 apr 2015
Kristjan Sigurdsson
0

Fjölmenningardagurinn 2015Laugardaginn 9. maí verður haldinn hátíðlegur fjölmenningardagur Reykjavíkur. Við erum að leita að allskonar listrænu fólki til að taka þátt í dagskrá í Tjarnarbíói á milli 14.30 og 17.00 Einungis stutt atriði koma til greina (2-10 mín.). Atriðið má vera dansýning, stutt leikrit, ljóð, uppistand eða eitthvað annað skemmtilegt sem ykkur dettur í hug. Athugið að ekki er greitt fyrir þátttökuna.

Öll þau sem hafa áhuga á að taka þátt í þessum viðburði eru hvött til að fylla út skráningareyðublað.
Ef þið hafið einhverjar spurningar eða ábendingar vinsamlegast hafið samband í síma 411 4159 (Adda) 411 4163 (Mia) eða sendið tölvupóst á netfangið fjolmenningardagur@reykjavik.is

Gleðilega páska.

05 apr 2015
Baldvin Berndsen
0
Grafarvogskirkja, Guðþjónusta, Helgihald, Kirkjan, Prestar

thumbnailEins og alþjóð veit heldur kirkjan páska til að fagna upprisu Jesú Krists frá dauðum. Þess vegna eru páskarnir gleði- og sigurhátíð í hugum kristinna manna og eru þeir raunar elsta hátíð kristninnar. Af þeim sökum kölluðu kirkjufeðurnir páskana Festum festorum eða hátíð hátíðanna. Sérhver sunnudagur er, frá sjónarhóli kristninnar, endurómur af gleðisöng páskanna: „Hann er sannarlega upprisinn!” Því er sunnudagurinn einnig nefndur Drottinsdagur.Sögu páskanna má rekja langt aftur fyrir daga Krists og raunar aftur fyrir gyðingdóminn sem sjálfstæðra þróaðra trúarbragða eða aftur til daga hinna fornu Hebrea eða Ísraelsmanna. Hebrearnir voru hirðingjaþjóð og hátíðarhald þeirra hefur án efa tengst atvinnu- og þjóðháttum líkt og algengt er með forna þjóðflokka. Líkur eru til að meðal þeirra hafi verið bannað að slátra sauðfé þegar sauðburður nálgaðist að vori (mars-apríl hjá okkur). Þegar burðurinn var um garð genginn hefur aftur á móti verið efnt til nokkurs konar „uppskeru-“ eða afurðahátíðar þar sem nýmetis var neytt og ugglaust brugðið á leik í dansleikum af ýmsu tagi. Hátíðin bar heiti sem kalla mætti pesah eða pesach og má þýða sem „hlaup”, „stökk”, „hökt” eða því um líkt og gæti það vísað til leikanna.Í 12. kap. 2. Mósebókar má hins vegar lesa um upphaf páskanna eins og Gyðingar túlkuðu hátíðina. Þar tengist hún útförinni af Egyptalandi (Exodus) er Móse leiddi Ísraelsmenn út úr ánauðinni hjá faraó, gegnum Rauðahafið og eyðimörkina í átt til hins fyrirheitna lands. Þetta voru frásagnir sem lögðu grunninn að sjálfsmynd Ísralesþjóðarinnar og síðar Gyðinga og hafa því svipaða stöðu og sagnir íslenskra fornrita af landnámi, stofnun alþingis og kristnitökunni. Þarna segir meðal annars:

Þá mælti Drottinn við þá Móse og Aron í Egyptalandi á þessa leið: … Á tíunda degi þessa mánaðar skal hver húsbóndi taka lamb fyrir fjölskyldu sína, eitt lamb fyrir hvert heimili… Lambið skal vera gallalaust, hrútlamb veturgamalt, og má vera hvort sem vill ásauðarlamb eða hafurkið. Og þér skuluð varðveita það til hins fjórtánda dags þessa mánaðar. Þá skal öll samkoma Ísraelssafnaðar slátra því um sólsetur. Þá skuluð þér taka nokkuð af blóðinu og ríða því á báða dyrastafi og dyratré húsa þeirra, þar sem þeir eta lambið… Þér skuluð vera gyrtir um lendar yðar, hafa skó á fótum og staf í höndum. Þér skuluð eta það í flýti. Það eru páskar Drottins. Því þessa sömu nótt vil ég fara um Egyptaland og deyða alla frumburði í Egyptalandi bæði menn og fénað… Og blóðið skal vera yður tákn á þeim húsum, þar sem þér eruð: Er ég sé blóðið, mun ég ganga fram hjá yður, og engin skæð plága skal yfir yður koma, þegar ég slæ Egyptaland.

Í ljósi þessa texta hefur orðið pesah (páskar) verið þýtt sem „framhjáganga” og látið vísa til þess að Drottinn hafði heitið að „ganga fram hjá dyrunum og ekki láta eyðandann koma í húsið til að ljósta…” þá er riðið höfðu blóði á dyrastafi sína.Eins og fram kemur í píslarsögum guðspjallanna (Matt. 26.-27. kap., Mark. 14.-15. kap., Lúk. 22.-23. kap. og Jóh. 18.-19. kap.) bar handtöku og krossfestingu Krists upp á páskahátíð gyðinga. Þess vegna varð páskalambið að tákni fyrir Krist í hugum kristinna manna eins og sjá má í Fyrra Korintubréfi Páls postula þar sem hann segir: „Því að páskalambi voru er slátrað, sem er Kristur.” (5:7) Milli páskahátíðar gyðinga og páska kristinna manna eru því bein söguleg og hugmyndafræðileg tengsl sem meðal annars koma fram í hinu sameiginlega heiti hátíðanna.Sú staðreynd að einhverjar mikilvægustu hátíðir kristni og gyðingdóms bera sama heiti minna okkur auðvitað á að Kristur var gyðingur, að hugtakaheimur kristninnar er að verulegu leyti frá gyðingum kominn og trúarritin eru að hluta hin sömu (rit Gamla testamentisins) þótt túlkanirnar séu um margt frábrugðnar. Milli þessara tveggja trúarhefða ætti því að geta ríkt meiri eining en oft hefur því miður verið raunin.

Heimildir:

Vísindavefur Háskóla Íslands.

BiblíanÁrni Björnsson, 1993. Saga daganna, Reykjavík, Mál og menning.

Dahlby, F./Lundberg, L. Å., 1983: Nya kyrkokalendern. Älvsjö, Verbum.

 

Gleðilega páska

 

 

« First‹ Previous123124125126127128129Next ›Last »
banner
banner
banner
banner
banner
banner

Gagnlegir tenglar

  • HEILSUGÆSLAN
  • AUSTURMIÐSTÖÐ
  • HVERFIÐ MITT
  • MOJE_S_SIEDZTWO
  • MANO_KAIMYNIST_JE
  • MY NEIGHBOURHOOD

Börnin okkar

  • FRAMHALDSSKÓLAR
  • GUFUNESBÆR
  • LEIK OG GRUNNSKÓLAR
  • SKÁTAFÉLAGIÐ HAMAR
  • TÓNLISTARSKÓLINN

GRAFARVOGSBÚAR Á FLICKR

Allur réttur áskilinn © 2025
www.grafarvogsbuar.is