Frístundaheimilið er í lausum kennslustofum við Rimaskóla, skála 3, 4, 5 og 6. Sem við köllum guli, rauði, græni og blái skálinn. Aðstaðan innadyra er ágæt og hefur starfsfólkið verið meðvitað um að standa saman í því að gera umhverfi öruggt og heimilislegt. Ásamt því að vera með aðstöðu í þessum skálum fáum við einnig að nýta okkur stofur í skólabyggingunni part úr degi.
Síminn í Tígrisbæ er 411-7736 / 695-5196 og netfangið okkar er tigrisbaer@reykjavik.is