Sunnudagurinn 29. janúar

Það verður messa kl. 11:00 í Grafarvogskirkju. Séra Guðrún Karls Helgudóttir og séra Grétar Halldór Gunnarsson þjóna. Fermingarbörnum í Kelduskóla og Vættaskóla er sérstaklega boðið ásamt fjölskyldum. Það verður stuttur fundur með þeim eftir messuna. Kór Grafarvogskirkju syngur og organisti er Hákon Leifsson. Sunnudagaskóli á neðri hæð kirkjunnar kl. 11:00. Umsjón hefur Þóra Björg og undirleikari er Stefán Birkisson.

Selmessa í Kirkjuselinu kl. 13:00. Séra Sigurður Grétar Helgason prédikar og þjónar fyrir altari. Vox populi syngur og organisti er Hilmar Örn Agnarsson. Sunnudagaskóli í Kirkjuselinu kl. 13:00. Umsjón hefur Bjarki Geirdal Guðfinnsson og undirleikari er Stefán Birkisson.

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.