Málefni Grafarvogs verða til umræðu á fundi borgarstjórnar nk. þriðjudag, 1. marz, að ósk borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Ábendingar eru vel þegnar um einstök atriði, sem má bæta í þjónustu Reykjavíkurborgar í hverfinu.
Einnig er gott að fá að vita um hluti sem borgin sinnir vel.
Slíkar ábendingar má setja inn hér að neðan eða senda mér í facebook-skilaboðum eða á netfangið kjartan@reykjavik.is
Kjartan Magnússon borgarfulltrúi
One Comment
Góðan daginn
Það sem sár vantar fyrir Grafarvogsbúa er boltahús þ.e.a.s. fyrir körfubolta og handbolta, hér hafa iðkendur mikið minni tíma til sinnar iðkunar heldur annarstaðar í borginni. Með bættri aðstöðu fáum við fleiri iðkendur sterkara félag og meiri forvarnir.
Borgarholtskóli er með afreksbraut og þá þarf góða aðstöðu fyrir þau sem eru á þeirri braut einnig bjóða grunnskólarnir upp á boltaval og Fjölnir er bíður upp á úrvalsbúðir fyrir grunnskólanema sem hefur reynst vel og heldur unglingunum vel einbeittum, en við vitum að íþróttahúsin í skólunum eru ekki góð (golfefni og annað) og ekki nóg og stór fyrir t.d. handboltan.
Svo sér það hver maður að eitt lítið boltahús (Dalhús) getur ekki annað þeim fjölda íbúa sem býr í Grafarvogi af sanngirni.