FermingSkráning í fermingarfræðsluna hefst í águst og á þeim tíma verða send bréf til forráðafólks barna á fermingaraldri í Grafarvogi.

Öll börn sem verðra 14 ára 2016 eru velkomin í fermingarfræðsluna. Prestar kirkjunnar annast fræðsluna sem fer fram í Kirkjuselinu í Spöng og í Grafarvogskirkju. Við hittumst einu sinni í viku í kirkjunni frá 1. september – 1. desember og 11. janúar – 1. mars. Guðsþónustur eru stór hluti af fermingarfræðslunni og verða þær alla sunnudaga í kirkjunni kl. 11 og í kirkjuselinu kl. 13.

Dregið verður um fermingardaga í guðsþjónustu sunnudaginn 6. september en fermingar hefjast 6. mars og verða alla sunndaga fram yfir páska. Einnig verður fermt á annan í páskum og á skírdag.

Hlökkum til að sjá ykkur í haust!