Byrjað var í morgun að ryðja snjó í húsagötum og verður unnið af krafti í húsagötum í allan dag. Snjóruðningsbílar voru á ferðinni í alla nótt á stofnbrautum og fyrir klukkan fjögur voru allir bílar ræstir út fyrir götur, sem og göngu- og hjólaleiðir. Í morgunsárið var svo bætt við fleiri tækjum sem betur geta athafnað sig í húsagötum.
Unnið var við snjóruðning í alla nótt á öllum stofnbrautum og í efri byggðum borgarinnar, einkum í Úlfarsárdal, á Víkurvegi og Korpúlfsstaðavegi. Klukkan hálf fjögur í nótt voru snjóruðningsbílar kallaðir út fyrir alla borgina og í morgunsárið eru allar helstu leiðir færar, en færð er víða erfið í húsagötum og hefur snjóruðningsvélum verið bætt við til að sinna því. Unnið verður í húsagötum í dag.