Nú fer vetrarstarfsemi körfuknattleiksdeildar að komast á fullt skrið. Krílaboltinn sem hefur verið í Rimaskóla verður í Vættaskóla Borgum í vetur.
Nýr þjálfari verður með hópinn í vetur, hún heitir Berglind Karen Ingvarsdóttir. Berglind er bæði leikmaður og aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna.
Berglind var með krílaboltann hjá Breiðablik veturinn 2015-2016.
Allar skráningar í krílahópinn eru gerðar rafrænt í Nora skráningarkerfi félagins á heimasíðu þess, https://fjolnir.felog.is/