Gunni Helga og töfrahurðarhljómsveitin
Borgarbókasafnið I Menningarhús Spönginni
Föstudaginn 19. október kl. 14
Ath að viðburðurinn er einnig í Gerðubergi sama dag kl. 11 og í Grófinni kl. 16.
Gunnar Helgason, Leifur Gunnarson og félagar bjóða fjölskyldum á frábæra skemmtun í haustfríinu. Enginn veit nákvæmlega hvað mun gerast, en fólk er beðið að hafa varann á því uppákoman gæti innihaldið snefilmagn af ótömdum spuna.
Eitthvað alveg svakalega dulafullt gerðist um daginn! Það kom í ljós að í gegnum eina skrýtna hurð kemur af og til furðulegt fólk með enn furðulegri hljóðfæri? Fá krakkarnir kannski að prófa hljóðfærin? Hefur píanóið skroppið saman? Mun einhver bresta í söng? Þetta kemur allt í ljós þegar töfrahurðin opnast.
Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Ókeypis aðgangur.
Flytjendur:
Gunnar Helgason, Leifur Gunnarsson, Svanhildur Lóa Bre, Tómas Jónsson, Rósa Guðrún Sveinsdóttir