Grafarvogskirkja – Barnastarfið er komið á fullt skrið

Barnastarfið í GrafarvogskirkjuBarna- og unglingastarf

Sunnudagaskólarnir

Sunnudagaskólar eru alla sunnudaga klukkan 11.00 í Grafarvogskirkju og í Kirkjuselinu Spöng.
Tekið er fagnandi á móti fjölskyldunni allri en foreldrar eru hvattir til að mæta með börnum sínum í þessar líflegu guðsþjónustur.
Sunnudagaskólarnir byggja á efni frá Fræðslusviði Biskupsstofu sem útgefið er af Skálholtsútgáfunni.
Þóra Björg Sigurðardóttir hefur umsjón með sunnudagaskóla í Kirkjuselinu og Ásthildur Guðmundsdóttir hefur umsjón með sunnudagaskóla í Grafarvogskirkju.

6-9 ára starf
Er í kirkjunni á þriðjudögum frá kl.16:45 – 17:45. Þar er farið í leiki, sungið og æft gospel, helgistundir, náttfataböll og annað skemmtilegt. Umsjón hefur Þóra Björg Sigurðardóttir.

Listasmiðja 9-11 ára
Í kirkjuselinu í Borgum (Spönginni) á fimmtudögum kl.17:00-18:00. Í listasmiðju er áhersla lögð á að rækta listræna tjáningu. Í listasmiðjunni munum við föndra, syngja, dansa, vera með leikræna tjáningu og margt fleira. Umsjón hefur Þóra Björg Sigurðardóttir.

10 – 12 ára starf
Í kirkjunni á mánudögum kl. 18:00-19:00. Umsjón hefur Þóra Björg Sigurðardóttir.

Tæknihópur 10-12 ára
Í kirkjuselinu í Borgum (Spönginni) á fimmtudögum kl.18:00-19:00.
Tæknihópurinn hittist í 6 skipti yfir önnina og er fyrsta skiptið fimmtudaginn 2. október. Þar gefst þátttakendum kostur á að skyggnast inní tækniheiminn í tengslum við ljós, hljóð og tölvur. Áætlað er að farið verði í 1-2 vettvangsferðir. Fyrir þá sem hafa brennandi tækniáhuga þá er þetta tækifæri sem þú vilt ekki missa af. Tæknihópurinn verður í umsjá Geirlaugs Inga og Þóru Bjargar. Þó munu fleiri koma að námskeiðinu með kynningar á ýmsum tæknimálum. Námskeiðsgjald fyrir tæknihópinn er 5.000 kr á barn. Fjöldatakmörkun er í hópinn og fer skráning fram á netfangið thora hjá grafarvogskirkja.is

Æskulýðsfélag
Í kirkjunni á mánudögum kl. 20:00-21:30 fyrir 8-10.bekk. Umsjón hefur Þóra Björg Sigurðardóttir.

Bendum við foreldrum að heimsækja síðuna www.barnatru.is ásamt börnum sínum.

Upplýsingar um barnastarfið gefur Þóra Björg Sigurðardóttir.

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.