Félagsmiðstöð í Spöng í Grafarvogi var formlega tekin í notkun og mun hún bæta þjónustu við eldri borgara í hverfinu.
Íbúar Eirborgar munu njóta þjónustu í nýju Félagsmiðstöðinni, en innangengt er um tengigang milli bygginganna. Korpúlfar, félag eldri borgara í Grafarvogi, verður með aðstöðu fyrir félags- og tómstundastarf sitt og Grafarvogssókn verður með kirkjusel í húsinu.
Matsalur með móttökueldhúsi er í Félagsmiðstöðinni, auk fjölnotasala sem hægt er að opna á milli og skapa stærra rými. Þá er gengt úr fjölnotasölum í skjólsælan suðurgarð hússins. Í húsinu verður aðstaða fyrir fótsnyrtingu og hárgreiðslu og á efri hæð opna dagdeild fyrir heilabilaða og skrifstofa félagslegrar heimaþjónustu Reykjavíkurborgar.
Góðan dag,
ég er að leita að sal til að halda fermingarveislu í þann 29. mars í vor. Þetta er Pálmasunnudagur. Séra Vigfús benti á þennan sal á fundi í gær og mér datt í hug að athuga hvort það væri laust hjá ykkur og þá hvað þessi salur tekur marga?
Kær kveðja,
Kristjana
Góðan dag
Er að fara að ferma og langar til að athuga hvort salurinn hjá ykkur sé laus þann 21 mars 2021 ?
hvað kostar að leigja hann?
gæti maður komið deginum á undan til að streita ?
er hægt að koma og skoða sal?
Bestu kveðjur Jónína Kristín