Erindi eru samtök fagfólks á sviði uppeldis-, lýðheilsu- og menntunarfræða og hafa það hlutverk að miðla fræðslu og skapa almenna umræðu um málefni sem varða hag barna og ungmenna á öllum skólastigum. Samtökin leitast við að vekja athygli á mikilvægum málum líðandi stundar sem varða samskipti og líðan nemenda, velferðarhlutverk skólans og uppeldishlutverk foreldra/forráðamanna.
Þann 28. janúar opanði Erindi samskiptasetur þar sem aðstandendur í eineltismálum geta fengið ráðgjöf og þjónustu frá fagaðilum.
Samskiptasetur Erindis býður einstaklingum, fjölskyldum og stofnunum upp á ráðgjöf og samráð í málum sem varða samskipti barna og unglinga. Erindi býður jafnframt upp á ákveðin fræðsluerindi hvert skólaár sem kynntir eru á heimasíðu samtakanna en einnig geta stofnanir og félagasamtök óskað eftir aðstoð þeirra við að útvega erindi og fyrirlesara um einstök málefni.
Erindi býður upp á ákveðna fyrirlestra hvert skólaár sem kynntir eru á heimasíðu samtakanna en jafnframt geta stofnanir og félagasamtök óskað eftir aðstoð þeirra við að útvega erindi og fyrirlesara um einstök málefni. Bóka má fræðsluerindi í gegnum netfangið erindi@erindi.is
Heimilisfang:
Spönginni 37
112 Reykjavík