Nemendur og starfsmenn Rimaskóla voru hvattir til að klæðast einhverju bleiku föstudaginn 11. október til að styðja við árveknis-og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélags íslands. Bleiki dagurinn nýtur vinsælda um allt land, ekki síst í skólum og á vinnustöðum. Á myndinni má sjá kennara og krakka í 7. bekk bregða á leik, klæðast bleiku og hafa gaman af. Í búningasamkeppninni bleiku vann Ninna kennari öruggan sigur.