• HEIM
  • HAFÐU SAMBAND
facebook
email
Helgihald kyrruviku og páska í Grafarvogskirkju
Fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur 12. mars 2025
Keldnaland – niðurstöður samkeppni
Mjólkurbikar KSÍ 2024
Frábær árangur hjá 4 flokki kvenna í knattspyrnu á Barcelona girls Cup:
  • HEIM
  • FRÉTTIR
  • MYNDIR
    • MYNDIR ÚR HVERFINU
  • HVERFIÐ OKKAR
    • VIÐBURÐIR
    • GALLERÍ KORPÚLFSSTAÐIR
    • ATVNNULÍFIÐ
      • VERSLUNARKJARNAR
        • BREKKUHÚSUM
        • HVERAFOLD
        • KORPUTORG
        • LAUFRIMA 21
        • SPÖNGIN
      • Sorpa
        • HVERFISSKIPULAG REYKJAVÍKUR
        • Hlutverk
        • Pappír er ekki rusl
    • FÉLAGASAMTÖK
      • KORPÚLFAR – FÉLAG ELDRI BORGARA Í GRAFARVOGI
      • SKÁTARNIR
    • GRAFARVOGSKIRKJA
      • Fermingar 2020
      • KIRKJUBYGGINGIN
      • LOGAFOLD SAFNAÐARBLAÐ
    • GÖNGU OG HJÓLALEIÐIR
    • HVERFISRÁÐ
      • HVERFIÐ Í TÖLUM
    • Heilsugæsla í Grafarvogi
    • ÍTR
      • GUFUNESBÆR
    • KORT AF GRAFARVOGI
    • MENNING OG LISTIR
      • KARLAKÓR GRAFARVOGS
      • MENNINGARHÚS SPÖNGINNI
    • SAGA GRAFARVOGS
      • KORPÚLFSSTAÐIR
    • SKÓLARNIR Í GRAFARVOGI
      • FÉLAGSMIÐSTÖÐVAR
      • FRAMHALDSSKÓLAR
      • FRÍSTUNDAHEIMILI
      • HEIMILI OG SKÓLI – LANDSSAMTÖK FORELDRA
        • FORELDRASÁTTMÁLINN
      • LEIK- OG GRUNNSKÓLAR
      • TÓNLISTARSKÓLINN
      • TÓNSKÓLI HÖRPUNNAR
    • STOLT GRAFARVOGS
    • ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐVAR
      • DAGFORELDRAR
        • DAGFORELDRAR Í HVERFINU
      • FÉLAGSMIÐSTÖÐ Í SPÖNG
      • ELDRI BORGARAR
      • FERÐAÞJÓNUSTA FATLAÐS FÓLKS
      • FÉLAGSLEG RÁÐGJÖF
      • FÉLAGSLEGAR ÍBÚÐIR
      • FJÁRHAGSAÐSTOÐ
      • SÉRFRÆÐIAÐSTOÐ VIÐ GRUNNSKÓLA
      • SKAMMTÍMAVISTUN ÁLFALAND
  • AÐSENT EFNI
    • DALE CARNEGIE
      • NÆSTA KYNSLÓÐ
    • TAPAÐ – FUNDIÐ
    • JÓLIN Í GRAFARVOGINUM
  • ÍÞRÓTTIR
    • FJÖLNIR
      • Sumarnámskeið 2019
      • Sumarnámskeið 2018
      • Sumarnámskeið 2016
    • GOLFKLÚBBUR REYKJAVÍKUR – KORPA
    • ÍÞRÓTTIR OG ÚTIVERA
    • GRAFARVOGSLAUG
      • ALMENNAR UPPLÝSINGAR
  • UM OKKUR

Aðsent efni

Fjölnir og Fylkir senda sameiginlegan meistaraflokk kvenna til leiks

29 apr 2020
Baldvin
0
Dalhús, Fjölni, Fjölnir og Fylkir, Fylkir, Grafarvogur, Handbolti
Frá vinstri: Anna Hrund Arnardóttir hkd Fylkir, Guðmundur I. Gunnarsson Fjölni, Magnús Þór Arnarson, Hörður Guðjónsson Fylki, Gísli Steinar, Gunnar Valur, Davíð Arnar Einarsson hkd Fjölni.

Gísli Steinar Jónsson og Gunnar Valur Arason taka við þjálfun Fjölnis/Fylkis í meistaraflokki kvenna. Félögin kynntu samstarfið á fundi fyrr í dag. Þeir taka við góðu búi af þeim Sigurjóni Friðbirni hjá Fjölni og Ómari Erni hjá Fylki. Markmið samstarfsins er að bæta umgjörð meistaraflokks og styðja enn frekar við uppbyggingu kvennastarfs í félögunum. Félögin vilja byggja upp samkeppnishæfan meistaraflokk sem mun með tímanum festa sig í sessi í efstu deild. Samningur félaganna nær til næstu þriggja ára.

Arna Hrund Arnardóttir formaður hkd. Fylkis og Davíð Arnar Einarsson formaður hkd. Fjölnis

Gísli Steinar Jónsson er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum. Hann hefur undanfarin tvö ár þjálfað yngri flokka kvenna hjá Fjölni ásamt því að sinna hlutverki aðstoðarþjálfara meistaraflokks kvenna á liðnu tímabili. Fyrir þann tíma bjó hann í Noregi og þjálfaði yngri flokka hjá Fet IL í sex ár. Gísli hlakkar til að takast á við krefjandi og skemmtileg verkefni sem tengjast samstarfi félaganna og að fylgja áfram öllum þeim efnilegu stelpum sem hann hefur þjálfað síðustu tvö ár og auk þess kynnast nýjum leikmönnum sem eru að bætast í hópinn fyrir næsta tímabil.

  • Þjálfararnir: Gísli Steinar Jónsson og Gunnar Valur Arason

Gunnar Valur Arason er uppalinn ÍR-ingur þar sem hann spilaði í yngri flokkunum og loks í meistaraflokki. Hann á einnig að baki leiki í meistaraflokki fyrir lið Víkings, Fylkis og Gróttu. Gunnar byrjaði ungur að þjálfa hjá ÍR og þjálfaði yngri flokka hjá félaginu í fjölmörg ár. Hann var einnig þjálfari yngri flokka Víkings í rúm tvö ár. Það var svo á tímabilinu 2014-2015 sem hann snéri aftur til ÍR, þá hjá 3. flokki, 4. flokki og sem aðstoðarþjálfari í meistaraflokki kvenna. Vorið 2015 tók Gunnar svo tímabundið við sem aðalþjálfari meistaraflokks kvenna hjá ÍR og svo aftur sem aðstoðarþjálfari meistaraflokksins árið 2017. Gunnar hefur þjálfað 3. og 4. flokk kvenna hjá ÍR frá 2014-2020. Loks má nefna að Gunnar hefur einnig komið að þjálfun afrekshóps hjá HSÍ.

Virðingafyllst,

Stjórn hkd. Fjölnis og Fylkis

Meistaraflokksráð Fjölnis/Fylkis


Email, RSS Follow

Mikið rusl fannst á Plokk deginum

26 apr 2020
Baldvin
0
Grafarvogur, Plokk, Plokk 2020, Rusl

Eins og hægt er að lesa í frétt á MBL.is þá fannst ótrúlegt magn af gömlum dekkjum austan megin í Grafarvogi.

Ljós­mynd/Þ​ór­unn Elfa Sæ­munds­dótt­ir

Fundu ríf­lega 130 ára­tuga­göm­ul dekk,

Hóp sem plokkaði rusl í gær við Vest­ur­lands­veg­inn brá held­ur bet­ur í brún þegar ein úr hópn­um, Hall­dóra Karls Jennýj­ar­dótt­ir, kom auga á rusl rétt fyr­ir ofan sjúkra­húsið Vog sem reynd­ist ekki vera neitt smá­ræði.

Ruslið, sem fyrst virt­ist vera venju­legt rusl, var nefni­lega alls ríf­lega 130 dekk sem eru lík­lega minj­ar frá mótorkross­braut sem var á svæðinu fyr­ir tutt­ugu árum síðan.

„Okk­ur skilst að fyr­ir um tutt­ugu árum síðan hafi verið mótorkross­braut á þessu svæði. Hún var greini­lega bara skil­in eft­ir án þess að frá henni væri gengið,“ seg­ir Þór­unn Elfa Sæ­munds­dótt­ir, ein úr hópn­um. Hún var enn að plokka þegar blaðamaður náði tali af henni rétt fyr­ir há­degi í dag. 

Ljós­mynd/Þ​ór­unn Elfa Sæ­munds­dótt­ir

„Við rýnd­um aðeins í dekk­in því það stend­ur alltaf á dekkj­um hvenær þau eru fram­leidd en þarna er meira að segja að finna dekk sem eru fram­leidd hér­lend­is, af Sóln­ingu og Gúmmívinnu­stof­unni svo þetta eru ansi göm­ul dekk,“ seg­ir Þór­unn.

Hóp­ur­inn þurfti að moka 12-14 dekk upp úr gróðri sem kom­inn var yfir þau en Þór­unn seg­ist vona að öll kurl séu nú kom­in til graf­ar og að svona frá­gang­ur, eða öllu held­ur ófrá­gang­ur, líðist ekki leng­ur. 

Ljós­mynd/Þ​ór­unn Elfa Sæ­munds­dótt­ir

Ásamt Þór­unni plokkuðu áður­nefnd Hall­dóra, Ægir Þórðar­son, Selma Maríus­dótt­ir og fleiri góðir.


Email, RSS Follow

Gleðilegt sumar kæru foreldrar!

24 apr 2020
Baldvin
0
Grafarvogur, Krakkar, Sumarstörf, Unglingastarf

Í sumar verður fjölbreytt framboð af afþreyingu og fræðslu fyrir börn og unglinga í Reykjavík. Finna má upplýsingar um sumarstarfið á frístundavefnum www.fristund.is, s.s. um starf
frístundamiðstöðva, siglinganámskeið, sumarbúðir, íþróttanámskeið, reiðnámskeið og margt fleira sem í boði er.

Skráning
Skráning í sumarstarf frístundaheimila (sumarfrístund), sértækt félagsmiðstöðvastarf, siglinganámskeið í Siglunesi og á dýranámskeið í Húsdýragarðinum hefst þriðjudaginn 28. apríl
kl. 10:00 en skráning í sumarsmiðjur fyrir börn sem eru að ljúka 5.-7. bekk hefst miðvikudaginn 13. maí kl. 10:00.

Skráning í sumarstarf á vegum Reykjavíkurborgar fer fram á vefnum http://sumar.fristund.is. Athugið að innskráning er á island.is þar sem hægt er að nota Íslykil eða Rafræn skilríki í síma.

Skráning í sumarstarf frístundaheimilanna, sértækt félagsmiðstöðvastarf og siglinga-námskeið þarf að fara fram fyrir kl. 12:00 á föstudögum eigi barn að byrja næsta mánudag á eftir.
Skráning á dýranámskeið þarf að fara fram á miðvikudegi í vikunni áður en námskeið hefst. Foreldrum er bent á að skrá börn sín tímanlega þar sem námskeiðin geta verið fljót að fyllast.

Ef foreldrar eru af erlendum uppruna og eiga lögheimili í Reykjavík (annað foreldri eða báðir) og barnið hefur búið á Íslandi skemur en tvö ár, eru þrjár vikur án endurgjalds í
sumarfrístund/sértækum félagsmiðstöðvum/sumarsmiðjum gegn umsókn þar um. Sótt er um skriflega til viðkomandi frístundamiðstöðar.
Þessi afsláttur gildir ekki fyrir börn sem eru með lögheimili erlendis og koma tímabundið hingað til lands yfir sumarmánuðina.

Athugið að ef foreldrar geta ekki nýtt sér rafræna innritun geta þeir fengið aðstoð við skráningu í frístundamiðstöðvum borgarinnar (helst fyrir hádegi). Ekki er hægt að skrá börn í sumarstarf
Reykjavíkurborgar í gegnum síma en hægt er að fá leiðbeiningar símleiðis hjá þjónustuveri í síma 411-1111 ef foreldrar eru við nettengda tölvu.

Skráning í sumarstarf hjá öðrum en Reykjavíkurborg fer fram hjá viðkomandi félagi/aðila.

Vinnuskólinn
Vinnuskóli Reykjavíkur býður nemendum úr 8., 9. og 10. bekkjum grunnskóla upp á sumarstörf. Skráning í skólann er hafin og öllum unglingum sem skráðir verða mun bjóðast starf. Foreldrar skrá
sína unglinga á heimasíðu Vinnuskólans, http://vinnuskoli.is og þar má jafnframt finna nánari upplýsingar um starfið.

Foreldrar athugið
Vegna Covid-19 faraldursins geta orðið breytingar á sumartilboðum borgarinnar í samræmi við ráðleggingar almannavarna og sóttvarnarlæknis hverju sinni. Ef til breytinga kemur verða foreldrar
upplýstir við fyrsta tækifæri.

Með von um ánægjulegt samstarf, skóla- og frístundasvið, íþrótta- og tómstundasvið og umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar

In English; https://reykjavik.is/en/news/variety-summer-activities-and-courses-children-and-adolescents

In Polish; https://reykjavik.is/sites/default/files/bref_til_foreldra_vegna_sumarstarfs.2020_polska.pdf

In Philippine; https://reykjavik.is/sites/default/files/bref_til_foreldra_vegna_sumarstarfs.2020_filippseyska.pdf


Email, RSS Follow

Áhugavert efni fyrir börn og foreldra á tímum Covid 19

18 apr 2020
Baldvin
0
efni, Gaman, Grafarvogur, Heimili og skóli, Krakkar
Heimili og skóli

Heimili og skóli og SAFT hafa gefið út efni í samstarfi við Evrópuráðið sem finna má á heimasíðunni www.saft.is

Um er að ræða góðar ábendingar um netnotkun með börnum á tímum Covid 19 og skemmtilegt spil þar sem reynir á þekkingu barna og fullorðinna á veirunni, áhrifum hennar og hvernig má forðast smit. Við hvetjum foreldra og aðra aðstandendur til að kynna sér leiðbeiningarnar og leikinn sem allir geta haft bæði gagn og gaman af.

Beinn tengill á efnið er hér: https://saft.is/wp-content/uploads/2020/04/Covid-SAFT.pdf

_____________________________________________

Heimili og skóli – landssamtök foreldra

Suðurlandsbraut 24, 2.hæð, 108 Reykjavík

Sími: 516 0100

Netfang: heimiliogskoli@heimiliogskoli.is


Email, RSS Follow

Borgarhverfi Reykjavíkur

15 apr 2020
Baldvin
0
Borgarvefsjá, Grafarvogshverfi, Grafarvogurinn, Hverfi borgarinnar, Reykjavík

Með því að smella á myndina má sjá hverfisskiptingu Reykjavíkur.

Grafarvogur

Email, RSS Follow

Grafarvogskirkja – streymir helgihaldi

09 apr 2020
Baldvin
0
Grafarovgskirkja streymir, Grafarvogskirkja, Helgihald, Messa, Prestar, Séra Arna, Séra Grétar, Steymi

Hittumst hér á Facebook! Við streymum frá guðsþjónustum: Á skírdag kl. 17.00 og á föstudaginn langa kl. 11.00

Email, RSS Follow

Fjölnir efnir til nafnasamkeppni

03 apr 2020
Baldvin
0
Egilshöllin, Fjölnir, Grafarvogur, Ný aðstaða Fjölni

Ungmennafélagið Fjölnir hefur tekið í notkun glæsilega aðstöðu í austurenda Egilshallar, til að mynda fyrir frjálsar íþróttir og þrekæfingar. Þessi aðstaða mun sérstaklega auka gæði og bæta starfsemi frjálsíþróttadeildarinnar. Aðrar deildir munu njóta góðs af flottri aðstöðu fyrir styrktar- og þrekæfingar.

Hægt er að senda inn tillögur í keppnina hér: https://tinyurl.com/r7ughfe.

Ef þú vilt lesa meira um fréttina þá smellir þú hér: https://tinyurl.com/sm9s64t.

#FélagiðOkkar


Email, RSS Follow

Fréttatilkynning frá Fjölni (ATH ekki apríl gabb)

01 apr 2020
Baldvin
0
Dalhús, Fjölnir, Grafarvogur., Handbolti, Nýr þjálfari

Handknattleiksdeild Fjölnis hefur gengið frá ráðningu Guðmundar Rúnars Guðmundssonar sem þjálfara meistaraflokks karla næstu tvö árin. Guðmundur hefur undanfarin tvö ár verið aðstoðarþjálfari liðsins en hefur í mörg ár starfað hjá félaginu sem þjálfari yngri flokka og sem styrktarþjálfari. 

Þetta verður frumraun Guðmundar sem aðalþjálfari í meistaraflokki og verður gaman að fylgjast með hvernig liðinu vegnar á komandi árum. Það er stjórn deildarinnar mikið fagnaðarefni að veita Guðmundi þetta tækifæri og við hlökkum til áframhaldandi samstarfs við hann.

Á næstunni munu þjálfari og stjórn í sameiningu fara í gegnum leikmannamál en ljóst er að liðið mun taka einhverjum breytingum næsta vetur.

  • Stjórn handknattleiksdeildar Fjölnis

Hlekkur á mynd: http://fjolnir.is/wp-content/uploads/2019/11/DSC_6395.jpg

Hlekkur á fréttina á heimasíðu Fjölnis: http://fjolnir.is/2020/04/01/frettatilkynning-handknattleiksdeildar/

Með bestu kveðju,

Arnór Ásgeirsson

Markaðsfulltrúi Fjölnis

arnor@fjolnir.is / +354 849 3418


Email, RSS Follow

Kæru Grafarvogsbúar

01 apr 2020
Baldvin
0
Dalhús, Fjölnir, Fjölnir knattspyrna, Grafarvogur., Heimaleikjakort, Lautin

Sökum aðstæðna í þjóðfélaginu þá hafa heimaleikjakort knattspyrnudeildar fyrir sumarið verið sett í sölu snemma.Við biðjum stuðningsfólk okkar að ganga frá kaupum á heimaleikjakorti núna strax, jafnvel þótt þið komist ekki á alla leikina. Ástæðan fyrir því er einföld en það hefur skrúfast fyrir tekjustreymið sökum Covid-19. Vinsamlega kaupið með einföldum hætti inni á vefverslun félagsins hér: https://fjolnir.felog.is/verslun

Í boði eru þrjár tegundir:-Gullkort / 25.000 kr.-Árskort / 15.000 kr.-Ungmennakort (nýjung) / 4.900 kr.

Vekjum sérstaka athygli á ungmennakortinu sem er ætlað ungu fólki á aldrinum 16-25 ára og er einstaklega góðu verði.Kortin gilda á alla heimaleiki meistaraflokks karla og kvenna Fjölnis og verða afhent á fyrsta heimaleik eða á skrifstofu Fjölnis á opnunartíma.

Samstaða er lykilatriði.

Eins og allir vita þá eru uppi sérstakar aðstæður í þjóðfélaginu um þessar mundir. Íþróttafélög eiga undir mikið högg að sækja og stór skörð eru höggin í tekjustofna þeirra. Fjölnir er þar engin undantekning. Til að mynda þá reiðir knattspyrnudeildin sig nær eingöngu á styrki og velvild fyrirtækja, einstaklinga, tekjur af ársmiðasölu og öðrum viðburðum. Knattspyrnudeild Fjölnis snertir líf þúsunda í Grafarvogi á jákvæðan hátt.

Takk fyrir þinn stuðning – hann skiptir máli!

www.fjolnir.is/arskort

#FélagiðOkkar


Email, RSS Follow
« First‹ Previous12131415161718Next ›Last »
banner
banner
banner
banner
banner
banner

Gagnlegir tenglar

  • HEILSUGÆSLAN
  • MIÐGARÐUR
  • HVERFIÐ MITT
  • MOJE_S_SIEDZTWO
  • MANO_KAIMYNIST_JE
  • MY NEIGHBOURHOOD

Börnin okkar

  • FRAMHALDSSKÓLAR
  • GUFUNESBÆR
  • LEIK OG GRUNNSKÓLAR
  • SKÁTAFÉLAGIÐ HAMAR
  • TÓNLISTARSKÓLINN

GRAFARVOGSBÚAR Á FLICKR

Allur réttur áskilinn © 2024
www.grafarvogsbuar.is