Í janúar 2009 lokaði ÁTVR Vínbúð í Spönginni en meginástæðan var óhentugt húsnæði. Í vor gerði ÁTVR hins vegar nýjan samning um leigu á um 430 fm húsnæði.
Í vöruvali Vínbúðarinnar í Spöng verða á bilinu 750 – 770 vörutegundir að jafnaði. Sérstakt afmarkað svæði verður fyrir bjór og allt aðgengi að vörum verður hið besta.
Vínbúðin mun opna fimmtudaginn 26. nóvember kl. 11. Opnunartíminn verður 11 – 18 mánudag – fimmtudag, 11 – 19 á föstudögum og 11 – 18 á laugardögum líkt og flestar Vínbúðir á höfuðborgarsvæðinu.
Starfsfólk Vínbúðarinnar hlakkar til að taka á móti viðskiptavinum í nýrri og glæsilegri Vínbúð.