Sól upprisunnar lýsi þér

Páskarnir miðla von. Von um eilíft líf. Jesús Kristur sigraði dauðann í upprisunni á páskadagsmorgni samkvæmt guðspjöllunum.Að sögn guðspjallamannsins…

Páskarnir miðla von. Von um eilíft líf. Jesús Kristur sigraði dauðann í upprisunni á páskadagsmorgni samkvæmt guðspjöllunum.Að sögn guðspjallamannsins voru það konurnar sem fyrstar urðu vitni að undrinu. Þær komu fyrstar að gröfinni á páskadagsmorgni og hafa alla tíð verið í lærisveinahópi Jesú.

Að konurnar hafi verið fyrstar að gröfinni varpar ljósi á mikilvægi þeirra í lærisveinahópnum. Jafnrétti kynjanna og mikilvægi hvers einstaklings eru hornsteinar kristins siðgæðis og menningar. Okkar kristna lýðræðismenning er nokkuð sem þjóðin verður að standa vörð um.

Undrið veitti þeim von sem þær miðluðu til vina sinna og áfram barst boðskapurinn kynslóð fram af kynslóð, boðskapurinn um sigurinn yfir dauðanum. Lífið er meira og stærra en virðist við fyrstu sýn. Boðskapur páskanna veitir þeim sem trúir stærri sjóndeildarhring en augun greina.

Þjónusta kirkjunnar á páskum hefur það markmið að miðla þessari von og glæða hana í samfélagi okkar.

Kirkjan þjónar um land allt, í hverjum bæ og hverri sveit. Það er undir þér komið hvort þú vilt leyfa sól upprisunnar að lýsa þér á lífsveginum.

Kristur þröngvar sér aldrei inn í líf

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.