Skjót viðbrögð við holum í malbiki

Starfsmenn Reykjavíkurborgar vilja bregðast skjótt við holum sem myndast í malbiki en slíkt getur gerst í rysjóttri tíð eins og verið hefur undanfarið.  Viðgerðir á holum sem valdið geta slysi eða tjóni á ökutækjum hafa hæsta forgang og gert er við þær eins skjótt og mögulegt er eða sett viðeigandi varúðarskilti.

Þeir sem vilja koma ábendingu á framfæri um holumyndun geta hringt í síma- og þjónustuver Reykjavíkurborgar í síma 411 1111 eða sett inn á ábendingavef Reykjavíkurborgar  > reykjavik.is/abendingar,

Ábendingavefur beintengdur verkstjórnarkerfi

Ábendingarnar geta varðað ýmislegt sem viðkemur viðhaldi á eignum borgarinnar eða hreinsun, svo sem holur í malbiki, laus brunnlok, sködduð umferðarmerki, lausar hellur, yfirfullar ruslatunnur, trjágróður sem hindrar för, skemmda bekkir, óþrifnað, snjóhreinsun, bilaðir ljósastaurar eða annað sem tengist þjónustu í borgarlandinu.

Ábendingakerfið er tengt verkstjórnarkerfi hverfamiðstöðvanna og er því besta leiðin til að koma ábendingum áleiðis.

Malbikað fyrir tvo milljarða í sumar

Í sumar eru fyrirhugaðar miklar malbiksframkvæmdir og hefur aldrei verið malbikað jafn mikið í borginni á einu ári. Kostnaðaráætlun hljóðar upp á tæpa tvo milljarða en lagðir verða 43 kílómetrar af malbiki.

Í frétt á vef Reykjavíkurborgar eru virkir tenglar >  http://reykjavik.is/frettir/skjot-vidbrogd-vid-holum-i-malbiki

 

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.