Það er ánægjulegt að segja frá því að undirskriftasöfnun sem ég hóf og á þriðja þúsund manns tóku þátt í hefur skilað þeim árangri að frá og með núna á föstudag verður í Grafarvogslaug og Árbæjarlaug opið alla virka daga og allar helgar til 22.00 eins og við íbúar hverfanna tveggja kröfðumst.
Það verður því eins opnunartími í sundlaug Grafarvogs og sundlaug Árbæjar og í öðrum sundlaugum borgarinnar:
Afgreiðslutími:
Mánudaga – föstudaga: kl. 6:30 – 22:00.
Helgar: kl. 9:00 – 22:00.
„Vill ég hvetja alla til að nýta sér strax þennan lengda helgaropnunartíma og skella sér í sund um helgina“