Vigfús presturKveðjumessa séra Vigfúsar Þórs Árnasonar verður í Grafarvogskirkju sunnudaginn 10. apríl kl. 14.00. Kór Grafarvogskirkju mun syngja ásamt Vox Populi ogBarnakór Grafarvogskirkju/Stúlknakór Reykjavíkur. Stjórnendur kóranna eru Hákon Leifsson, Hilmar Örn Agnarsson og Margrét Pálmadóttir. Garðar Cortes mun syngja einsöng og Matthías Stefánsson leika á fiðlu. Kaffiveitingar verða í boði að lokinni messu og að því loknu verða tónleikar í kirkjunni til heiðurs sr. Vigfúsar Þórs.

Sunnudagaskólinn verður eins og venja er kl. 11:00 en hann verður á efri hæð kikjunnar. Umsjón hafa Benjamín Pálsson, æskulýðsfulltrúi og sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir. Undirleikari er Stefán Birkisson.

Vekomin!