Nemendur í unglingadeild Rimaskóla hafa undanfarin 10 ár fengið tækifæri til að taka þátt í verkefni sem heitir ,,Hugsað um barn.“ Verkefnið er hluti af kynfræðslu en Rimaskóli hefur verið með sérstakan tíma í stundatöflu nemenda þar sem unnið er að kynja- og jafnréttisfræðslu.
Í þessu verkefni sinna strákar jafnt á við stelpur umönnun ,,ungabarns“ yfir helgi með öllu því sem tilheyrir að leggja til hliðar sínar þarfir og sinna ,,barni“. Nemendur hafa staðið sig mjög vel í þessu verkefni sem er ekki eingöngu forvörn fyrir ótímabærar barneignir, heldur er þetta ómetanleg æfing í þolinmæði og þrautseigju því þetta er alls ekki auðvelt verkefni.
Nemendur líta öðrum augum á foreldrahlutverkið eftir þessa reynslu og halda vonandi sem lengst í barnæskuna og bíða með barneignir. Betri forvörn er vart hægt að hugsa sér! Foreldrafélagið styrkir verkefnið ásamt Menntamálaráðuneytinu en síðan greiða foreldrar nemenda mismuninn.
Verkefnið hefur vakið mikla eftirtekt og kom t.d. fréttamaður frá Stöð 2 og vefsjónvarp Morgunblaðsins á dögunum í Rimaskóla til að taka viðtöl við nemendur um reynslu sína.