Fegrunarnefnd Korpúlfa sendir bestu þakkir til allra sem tóku þátt í hreinsunardeginum á mánudaginn.
Einnig þeim sem voru með okkur í anda, skipulögðu verkefnin, lánuðu bíla, kerrur, komu með góðar ábendingar eða lögðu okkur lið á margvíslegan hátt. Grillaðar voru síðan 110 pylsur við Gufunesbæ og Jóhann Helgason stjórnaði fjöldasöng af sinni alkunnu snilld.
Það sannaðist enn einu sinni hjá Korpúlfum að margar hendur vinna létt verk, með gleði í hjarta.