Messan hefst að venju kl. 11. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar, Barnakór Grafarvogskirkju syngur undir stjórn Sigríðar Soffíu Hafliðadóttur, organisti er Agnar Már Magnússon.
Allir eru velkomnir.
Sunnudagaskólinn er á neðri hæðinni á sama tíma, undir stjórn Þóru og Sr. Sigurðar Grétars.
Undirleikari er Stefán Birkisson.
Selmessa sunnudagsins verður með óvenjulegu sniði. Hún verður helguð umferðaröryggi og því að sjást í myrkrinu. Sr. Sigurður Grétar Helgason þjónar og gestir frá lögreglunni og umferðarstofu taka þátt. Vox Populi syngur undir stjórn Stefáns Birkissonar.
Sunnudagaskólinn verður á sama tíma undir stjórn Matthíasar Guðmundssonar.