Frestur til að sækja um styrk til Hverfissjóðs Reykjavíkurborgar fyrir árið 2014 er til miðnættis þriðjudaginn 15. apríl. Hægt er að sækja um styrki til verkefna í einu eða fleiri hverfum eða almennt í borginni. Einstaklingar, hópar, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir geta sótt um. Hámarksupphæð hvers styrks er 700.000 krónur.
Tilgangur Hverfissjóðs Reykjavíkur er að styðja við verkefni sem stuðla að eftirtöldum þáttum í hverfum borgarinnar:
• Bættu mannlífi og eflingu félagsauðs
• Fegurri ásýnd borgarhverfa
• Auknu öryggi í hverfum borgarinnar
• Samstarfi íbúa, félagasamtaka eða fyrirtækja við borgarstofnanir.
Sótt er um á mínum síðum á Rafrænni Reykjavík. Stjórn sjóðsins fer yfir allar umsóknir og tekur ákvörðun um styrkveitingar í samræmi við úthlutunarreglur sjóðsins og styrkjareglur Reykjavíkurborgar. Nánari upplýsingar á www.reykjavik.is/hverfissjodur