Bjarg íbúðáfélag ASÍ og BSRB hafa fengið byggingarrétti úthlutað á þremur stöðu í Reykjavík.
Er Bjargi íbúðafélagi ætlað að tryggja tekjulágum fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að ódýru, öruggu og vönduðu íbúðarhúsnæði.
Lóðirnar sem nú er úthlutað eru í Spönginni, Úlfarsárdal og á Kirkjusandi, hér að neðan er frétt sem birtist á vefnum okkar í september 2016 þar sem kynnt
er svæðið við Spöngina.
Spöngin eining G Spöngin 3-5 / Móavegur 2-4
Tillagan liggur einnig frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15 frá 13. júlí 2016 til og með 24. ágúst 2016. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 24. ágúst 2016. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.