Starfsmenn Fagverks unnu af krafti í dag við holuviðgerðir á malbiki. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og draga úr umferðarhraða er þeir eiga leið hjá viðgerðarflokkum sem nýta að nú er hagstætt veður til malbiksviðgerða.
„Það er þornað á öllum götum og hitinn mjög hagstæður,“ segir Ólafur Á. Axelsson, verkefnisstjóri í malbiksviðgerðum í Reykjavík. Fagverk er með tvo vinnuflokka, auk þess eru starfsmenn hverfastöðva Reykjavíkurborgar sinna minni viðgerðum og útköllum í framhaldi af ábendingum vegfarenda.
Í dag unnu starfsmenn Fagverks á eftirtöldum götum:
- Tunguháls
- Vesturhólar
- Bíldshöfði allur
- Breiðhöfði (Bíldshöfði – Eldshöfði )
Á næstu dögum verður unnið á eftirtöldum götum. Listinn er ekki tæmandi og bætt er við hann eftir þörfum:
- Borgartún 33 við hringtorg
- Engjavegur
- Hátún 23 við innkeyrslu að Krónunni
- Holtavegur við Sæviðarsund og fleiri staðir
- Kringlan 87
- Kringlan austan við útkeyrslu
- Kringlan í vestur
- Laugardalur við KSÍ
- Skeiðarvogur við Sæbraut
- Skeifan 11 við bílaleigu
- Borgarvegur, nokkrir staðir
- Fjallkonuvegur (Logafold – Gagnvegur )
- Hverafold (Fjallkonuvegur – Fjörgyn)
- Langirimi, nokkrir staðir
- Skyggnisbraut
- Flugvallarvegur við Öskjuhlíð
- Hofsvallargata við Melabúðina
- Lækjargata
- Tryggvagata
- Vatnsmýrarvegur
Í fyrsta forgangi voru eftirtaldar götur og er vinnu við þær lokið:
- Álfabakki við Olís
- Jaðarsel, nokkrir staðir
- Rangársel
- Austurberg ( Suðurhólar – Gerðuberg)
- Bústaðavegur næst Reykjanesbraut
- Bústaðavegur vestan Grensásvegar
- Grensásvegur sunnan Miklubrautar
- Háaleitisbraut (Miklabraut – Austurver )
- Hlemmur
- Hverfisgata (Klappastígur – Lækjargata )
- Skeiðarvogur (Langholtsvegur – Sæbraut )
- Stekkjarbakki rampi
- Suðurlandsbraut ( Skeiðarvogur– Álfheimar )
Þessar viðgerðir eru fyrir utan minni skyndiviðgerðir sem hverfastöðvar Reykjavíkurborgar sinnir og holur á stofnbrautum sem Vegagerðin sinnir.
http://reykjavik.is/frettir/vidrar-vel-til-malbiksvidgerda