Skákdeild Fjölnis heldur skákmót í Hlöðunni Gufunesbæ á vetrarleyfisdögum grunnskólannna. Mótið fer fram fimmtudaginn 23. febrúar frá kl. 13:30 – 15:30.
6 umferðir með tímamörkin 4.02.
Allir vetrarleyfisnemendur grunnskólanna velkomnir á ókeypis skákmót.
Í boði verður hin eina sanna skúffukaka sem alla skákkrakka hressir, bætir og kætir.
20 verðlaun. Skákmótið er á dagskrá Brúarinnar frístundamiðstöðvar á vetrarleyfisdögum.
Þátttakendur eru beðnir um að mæta tímanlega til skráningar kl. 13:15.
![](https://i0.wp.com/grafarvogsbuar.is/wp-content/uploads/2023/02/Vetrarleyfis-skak.jpg?resize=960%2C720)