Mikið óveður gekk yfir suðuvesturlandið í nótt og hafði lögregla og björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu í nógu að snúast. Björgunarsveitir fóru í yfir 40 útköll þar sem trampólín, þakplötur og vinnupallar höfðu fokið og tré brotnuðu í veðurofsanum. Í Grafarvogskirkjugarðinum brotnuðu tré á nokkrum stöðum. Ekki er vitað um frekari skemmdir í Grafarvoginum.
Veðrið er að mestu gengið yfir en í kvöld er spáð miklu hvassvirði á nýjan leik.