Þá er komið að fjórða leik í úrslitaeinvígi Fjölnis og Skallagríms í körfuboltanum sem hefst klukkan 16 í dag í íþróttahúsinu í Borgarnesi. Fjölnir eru yfir 2-1 í einvíginu eftir frækin sigur í síðasta leik og með sigri í dag tryggja strákarnir sér sæti í Dominosdeildinni.
Stuðningurinn í úrslitakeppninni hefur verið hreint út sagt stórkostlegur og eru stuðningsmenn Fjölnis hvattir til að fjölmenna í Borgarnes og styðja við bakið á sínu liði.