Í dag kl. 15.30 festa Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í Reykjavík og Óli Gneisti Sóleyjarson þjóðfræðingur upp skiltið Svarthöfði, en það er nýtt götuheiti í Reykjavík.
Óli Gneisti setti hugmyndina að kenna götu við persónu úr Star Wars á hugmyndavefinn Betri Reykjavík og hlaut hún mikið fylgi.
Vegmerkingin verður sett upp þar sem Svarthöfði mætir Stórhöfða (sjá kort). Svarthöfði hét áður Bratthöfði.