• HEIM
  • HAFÐU SAMBAND
facebook
email
Helgihald kyrruviku og páska í Grafarvogskirkju
Fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur 12. mars 2025
Keldnaland – niðurstöður samkeppni
Mjólkurbikar KSÍ 2024
Frábær árangur hjá 4 flokki kvenna í knattspyrnu á Barcelona girls Cup:
  • HEIM
  • FRÉTTIR
  • MYNDIR
    • MYNDIR ÚR HVERFINU
  • HVERFIÐ OKKAR
    • VIÐBURÐIR
    • GALLERÍ KORPÚLFSSTAÐIR
    • ATVNNULÍFIÐ
      • VERSLUNARKJARNAR
        • BREKKUHÚSUM
        • HVERAFOLD
        • KORPUTORG
        • LAUFRIMA 21
        • SPÖNGIN
      • Sorpa
        • HVERFISSKIPULAG REYKJAVÍKUR
        • Hlutverk
        • Pappír er ekki rusl
    • FÉLAGASAMTÖK
      • KORPÚLFAR – FÉLAG ELDRI BORGARA Í GRAFARVOGI
      • SKÁTARNIR
    • GRAFARVOGSKIRKJA
      • Fermingar 2020
      • KIRKJUBYGGINGIN
      • LOGAFOLD SAFNAÐARBLAÐ
    • GÖNGU OG HJÓLALEIÐIR
    • HVERFISRÁÐ
      • HVERFIÐ Í TÖLUM
    • Heilsugæsla í Grafarvogi
    • ÍTR
      • GUFUNESBÆR
    • KORT AF GRAFARVOGI
    • MENNING OG LISTIR
      • KARLAKÓR GRAFARVOGS
      • MENNINGARHÚS SPÖNGINNI
    • SAGA GRAFARVOGS
      • KORPÚLFSSTAÐIR
    • SKÓLARNIR Í GRAFARVOGI
      • FÉLAGSMIÐSTÖÐVAR
      • FRAMHALDSSKÓLAR
      • FRÍSTUNDAHEIMILI
      • HEIMILI OG SKÓLI – LANDSSAMTÖK FORELDRA
        • FORELDRASÁTTMÁLINN
      • LEIK- OG GRUNNSKÓLAR
      • TÓNLISTARSKÓLINN
      • TÓNSKÓLI HÖRPUNNAR
    • STOLT GRAFARVOGS
    • ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐVAR
      • DAGFORELDRAR
        • DAGFORELDRAR Í HVERFINU
      • FÉLAGSMIÐSTÖÐ Í SPÖNG
      • ELDRI BORGARAR
      • FERÐAÞJÓNUSTA FATLAÐS FÓLKS
      • FÉLAGSLEG RÁÐGJÖF
      • FÉLAGSLEGAR ÍBÚÐIR
      • FJÁRHAGSAÐSTOÐ
      • SÉRFRÆÐIAÐSTOÐ VIÐ GRUNNSKÓLA
      • SKAMMTÍMAVISTUN ÁLFALAND
  • AÐSENT EFNI
    • DALE CARNEGIE
      • NÆSTA KYNSLÓÐ
    • TAPAÐ – FUNDIÐ
    • JÓLIN Í GRAFARVOGINUM
  • ÍÞRÓTTIR
    • FJÖLNIR
      • Sumarnámskeið 2019
      • Sumarnámskeið 2018
      • Sumarnámskeið 2016
    • GOLFKLÚBBUR REYKJAVÍKUR – KORPA
    • ÍÞRÓTTIR OG ÚTIVERA
    • GRAFARVOGSLAUG
      • ALMENNAR UPPLÝSINGAR
  • UM OKKUR

Stærðfræði – kennsla á netinu

17 sep 2013
Baldvin
0
Barnastarf, Börn, Grafarvogur, Grunnskólar Grafarvogs, Skólastarf

Um mig:

Áhugi minn á tölvum og internetinu kviknaði í námi mínu í Kennaraháskóla Íslands. Í kennaranáminu lærði ég að senda tölvupóst í gegnum skel, fara á spjallrásir í gegnum skel, búa til heimasíður og  að forrita. Þegar ég útskrifaðist frá Kennaraháskólanum árið 1997 kom ekkert annað til greina en að fara í tölvunarfræði í Háskóla Íslands. Ég útskrifaðist þaðan árið 2000 og fór þá að vinna sem yfirmaður í hugbúnaðarfyrirtæki og var þar í 7 ár. Ég var þá tilbúin að gera eitthvað annað og kenndi ég stærðfræði á unglingastigi í grunnskóla í Reykjavík í eitt ár áður en við fjölskyldan fluttum svo sumarið 2008 til Bandaríkjanna. Maðurinn minn lauk doktorsnámi sínu  þar í febrúar síðastliðnum og við erum núna alkomin heim. Verkefnin mín í dag eru þríþætt: ég er að vinna efni fyrir ný námskeið fyrir staerdfraedi.is, svo er ég að þróa nýjar leiðir og möguleika í kennslu á netinu sem og að kenna stærðfræði á framhaldsskólastigi.

Um vefinn:

Mér finnst frábært að geta nýtt möguleik internetsins. Sjálf þurfti ég að fara í aukatíma í stafsetningu þegar ég byrjaði í MR. Þá tók ég strætó frá Seltjarnarnesi inn í Mjódd. Það fór mikill tími í ferðalög, þetta var um miðjan dag svo ég var oft að missa af ýmsu sem var að gerast. Ég lærði reyndar svakalega mikið svo þetta var vel þess virði – en í dag eru allt aðrir möguleikar í boði.

Þegar kemur að stærðfræðikennslu, þá er það bara þannig að ákveðinn hluti nemenda nær efninu strax, en stór hluti nemenda þarf að fá kennsluna endurtekna nokkrum sinnum til þess að ná skilningi á efninu og myndbandakennsla leysir það frábærlega.

Ástæðan fyrir því að ég fór af stað með vefinn staerdfraedi.is er að ég vil að nemendur hvar sem er á landinu geti lært hvar sem er, hvenær sem er og á þeim hraða sem þeim hentar.

Ég byrjaði á að kenna einkatíma í gegnum netið, en er núna aðallega með námskeið. Mér finnst námskeiðin meira spennandi þar sem ég get náð til margra nemenda í einu en ég hef verið að nýta mér Google Hangout til að hitta nemendur, gefið nemendum mínum aðgang inn á gagnvirka æfingavefi og verið með ýmsar útfærslur til þess að nemendur fái sem mest út úr námskeiðunum.

Næstu vikur mun ég byrja með mjög spennandi námskeiðspakka sem eru, til að byrja með, sérstaklega hugsaðir fyrir nemendur í 9. og 10. bekk – bæði fyrir þá sem vantar góðan grunn í stærðfræði en einnig  fyrir þá sem vilja fá góðar einkunnir til að geta valið hvaða framhaldsskóla þeir fara í.

 

Bestu kveðjur,

Gyða Guðjónsdóttir

Stærðfræðikennari

Stærðfræði.is

 

Email, RSS Follow

Share this:

  • Click to print (Opens in new window) Print
  • Click to email a link to a friend (Opens in new window) Email
  • Click to share on Facebook (Opens in new window) Facebook
  • Click to share on LinkedIn (Opens in new window) LinkedIn

Sendu skilaboð Hætta við svar

*
*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

maí 2025
M Þ M F F L S
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293031  
« apr    

Gagnlegir tenglar

  • HEILSUGÆSLAN
  • MIÐGARÐUR
  • HVERFIÐ MITT
  • MOJE_S_SIEDZTWO
  • MANO_KAIMYNIST_JE
  • MY NEIGHBOURHOOD

Börnin okkar

  • FRAMHALDSSKÓLAR
  • GUFUNESBÆR
  • LEIK OG GRUNNSKÓLAR
  • SKÁTAFÉLAGIÐ HAMAR
  • TÓNLISTARSKÓLINN

GRAFARVOGSBÚAR Á FLICKR

Allur réttur áskilinn © 2024
www.grafarvogsbuar.is