• HEIM
  • HAFÐU SAMBAND
facebook
email
Helgihald kyrruviku og páska í Grafarvogskirkju
Fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur 12. mars 2025
Keldnaland – niðurstöður samkeppni
Mjólkurbikar KSÍ 2024
Frábær árangur hjá 4 flokki kvenna í knattspyrnu á Barcelona girls Cup:
  • HEIM
  • FRÉTTIR
  • MYNDIR
    • MYNDIR ÚR HVERFINU
  • HVERFIÐ OKKAR
    • VIÐBURÐIR
    • GALLERÍ KORPÚLFSSTAÐIR
    • ATVNNULÍFIÐ
      • VERSLUNARKJARNAR
        • BREKKUHÚSUM
        • HVERAFOLD
        • KORPUTORG
        • LAUFRIMA 21
        • SPÖNGIN
      • Sorpa
        • HVERFISSKIPULAG REYKJAVÍKUR
        • Hlutverk
        • Pappír er ekki rusl
    • FÉLAGASAMTÖK
      • KORPÚLFAR – FÉLAG ELDRI BORGARA Í GRAFARVOGI
      • SKÁTARNIR
    • GRAFARVOGSKIRKJA
      • Fermingar 2020
      • KIRKJUBYGGINGIN
      • LOGAFOLD SAFNAÐARBLAÐ
    • GÖNGU OG HJÓLALEIÐIR
    • HVERFISRÁÐ
      • HVERFIÐ Í TÖLUM
    • Heilsugæsla í Grafarvogi
    • ÍTR
      • GUFUNESBÆR
    • KORT AF GRAFARVOGI
    • MENNING OG LISTIR
      • KARLAKÓR GRAFARVOGS
      • MENNINGARHÚS SPÖNGINNI
    • SAGA GRAFARVOGS
      • KORPÚLFSSTAÐIR
    • SKÓLARNIR Í GRAFARVOGI
      • FÉLAGSMIÐSTÖÐVAR
      • FRAMHALDSSKÓLAR
      • FRÍSTUNDAHEIMILI
      • HEIMILI OG SKÓLI – LANDSSAMTÖK FORELDRA
        • FORELDRASÁTTMÁLINN
      • LEIK- OG GRUNNSKÓLAR
      • TÓNLISTARSKÓLINN
      • TÓNSKÓLI HÖRPUNNAR
    • STOLT GRAFARVOGS
    • ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐVAR
      • DAGFORELDRAR
        • DAGFORELDRAR Í HVERFINU
      • FÉLAGSMIÐSTÖÐ Í SPÖNG
      • ELDRI BORGARAR
      • FERÐAÞJÓNUSTA FATLAÐS FÓLKS
      • FÉLAGSLEG RÁÐGJÖF
      • FÉLAGSLEGAR ÍBÚÐIR
      • FJÁRHAGSAÐSTOÐ
      • SÉRFRÆÐIAÐSTOÐ VIÐ GRUNNSKÓLA
      • SKAMMTÍMAVISTUN ÁLFALAND
  • AÐSENT EFNI
    • DALE CARNEGIE
      • NÆSTA KYNSLÓÐ
    • TAPAÐ – FUNDIÐ
    • JÓLIN Í GRAFARVOGINUM
  • ÍÞRÓTTIR
    • FJÖLNIR
      • Sumarnámskeið 2019
      • Sumarnámskeið 2018
      • Sumarnámskeið 2016
    • GOLFKLÚBBUR REYKJAVÍKUR – KORPA
    • ÍÞRÓTTIR OG ÚTIVERA
    • GRAFARVOGSLAUG
      • ALMENNAR UPPLÝSINGAR
  • UM OKKUR

Spartunnan áfram vinsæl í Reykjavík

03 maí 2016
Kristjan Sigurdsson
0

SpartunnanFyrirspurnir um spartunnur í Reykjavík eru langt umfram væntingar. Sífellt meira magn af plasti berst til endurvinnslu en um 33 tonn bárust frá heimilum í Reykjavík fyrstu 4 mánuði ársins. Aukning er í pappírstunninni á milli ára, fór úr 27 kg á íbúa árið 2014 í 29 kg á íbúa 2015.

Spartunnan er greinilega ákjósanlegur góður kostur fyrir borgarbúa. „Fyrirspurnir um spartunnur eru langt umfram væntingar, við þurftum að panta fleiri en áætlað var og von er á nýrri sendingu upp úr mánaðamótum,“ segir Eygerður Margrétardóttir deildarstjóri umhverfis- og úrgangsstjórnunar hjá Reykjavíkurborg.  Spartunnan stendur sérbýlishúsum til boða og er sótt á 14 daga fresti.

Reykjavíkurborg hefur farið þá leið að bjóða íbúum að velja það þjónustustig sem hentar þeim og að greiða fyrir þjónustuna í takt við það. Þannig geta íbúar valið hvort þeir vilja nýta sér þjónustu grenndar- eða endurvinnslustöðva eða hvort þeir kjósa að endurvinnanlegur úrgangur sé sóttur frá heimilum þeirra. Á heimilum þar sem lítið fellur til af blönduðum úrgangi geta íbúar í sérbýli óskað eftir spartunnu sem er ódýrari og helmingi minni en gráa tunnan eða 120 lítrar.

Íbúar í fjölbýlum geta endurskoðað fjölda grárra tunna og fækkað þeim ef tilefni er til og greitt þannig lægri gjöld. Oft má fækka gráum tunnum í fjölbýlishúsum þar sem tunnur eru samnýttar og getur þá skapast svigrúm til að fá grænar og bláar tunnur undir endurvinnsluefni.

Blandaður úrgangur frá heimilum fer í spartunnuna eins og í gráu tunnuna. Hún er minni en sú hefðbundna og tekur 120 lítra í stað 240. Spartunnan var áður sótt á 20 daga fresti. Fyrir hirðubreytinguna voru 3.500 spartunnur sóttar á 20 daga fresti og tóku 240 lítra, það gera 80 lítrar á viku. Spartunnunni var breytt og tekur nú 120 lítra og er sótt á 14 daga fresti en það gera um 60 lítra á viku.

Spartunnan stendur öllum sérbýlum til boða og eru um 31% þeirra að nota hana. Hún er góður kostur fyrir heimili sem flokka og hafa tamið sér vistvæna neysluhætti.

Magn endurvinnsluefna vex

Blandaður úrgangur frá heimilum í Reykjavík stóð nánast í stað á milli áranna 2014 og 2015, fer úr 149 kg á íbúa í 151 kg á íbúa. Aukning er í pappírstunninni á milli ára, fór úr 27 kg á íbúa árið 2014 í 29 kg á íbúa 2015.

Sífellt meira magn af plasti berst til endurvinnslu en um 33 tonn bárust frá heimilum í Reykjavík fyrstu 4 mánuði ársins en í dag eru ríflega 2000 slíkar tunnur við heimili. Plastið fór úr 4,5 tonnum í janúar í 10,5 tonn í mars sem er 57% aukning.

Heildarmagn af úrgangi frá heimilum í Reykjavík var 233 kg á íbúa árið 2006 en árið 2015 hafði sú tala lækkað um 22% og var 181 kg á íbúa. Þar af voru 29 kg endurvinnsluefni svo magn blandaðs úrgangs hefur dregist saman um 35% á tæpum 10 árum.

Email, RSS Follow

Share this:

  • Click to print (Opens in new window) Print
  • Click to email a link to a friend (Opens in new window) Email
  • Click to share on Facebook (Opens in new window) Facebook
  • Click to share on LinkedIn (Opens in new window) LinkedIn
Um höfundinn

Sendu skilaboð Hætta við svar

*
*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

júní 2025
M Þ M F F L S
 1
2345678
9101112131415
16171819202122
23242526272829
30  
« apr    

Gagnlegir tenglar

  • HEILSUGÆSLAN
  • MIÐGARÐUR
  • HVERFIÐ MITT
  • MOJE_S_SIEDZTWO
  • MANO_KAIMYNIST_JE
  • MY NEIGHBOURHOOD

Börnin okkar

  • FRAMHALDSSKÓLAR
  • GUFUNESBÆR
  • LEIK OG GRUNNSKÓLAR
  • SKÁTAFÉLAGIÐ HAMAR
  • TÓNLISTARSKÓLINN

GRAFARVOGSBÚAR Á FLICKR

Allur réttur áskilinn © 2024
www.grafarvogsbuar.is