• HEIM
  • HAFÐU SAMBAND
facebook
email
Helgihald kyrruviku og páska í Grafarvogskirkju
Fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur 12. mars 2025
Keldnaland – niðurstöður samkeppni
Mjólkurbikar KSÍ 2024
Frábær árangur hjá 4 flokki kvenna í knattspyrnu á Barcelona girls Cup:
  • HEIM
  • FRÉTTIR
  • MYNDIR
    • MYNDIR ÚR HVERFINU
  • HVERFIÐ OKKAR
    • VIÐBURÐIR
    • GALLERÍ KORPÚLFSSTAÐIR
    • ATVNNULÍFIÐ
      • VERSLUNARKJARNAR
        • BREKKUHÚSUM
        • HVERAFOLD
        • KORPUTORG
        • LAUFRIMA 21
        • SPÖNGIN
      • Sorpa
        • HVERFISSKIPULAG REYKJAVÍKUR
        • Hlutverk
        • Pappír er ekki rusl
    • FÉLAGASAMTÖK
      • KORPÚLFAR – FÉLAG ELDRI BORGARA Í GRAFARVOGI
      • SKÁTARNIR
    • GRAFARVOGSKIRKJA
      • Fermingar 2020
      • KIRKJUBYGGINGIN
      • LOGAFOLD SAFNAÐARBLAÐ
    • GÖNGU OG HJÓLALEIÐIR
    • HVERFISRÁÐ
      • HVERFIÐ Í TÖLUM
    • Heilsugæsla í Grafarvogi
    • ÍTR
      • GUFUNESBÆR
    • KORT AF GRAFARVOGI
    • MENNING OG LISTIR
      • KARLAKÓR GRAFARVOGS
      • MENNINGARHÚS SPÖNGINNI
    • SAGA GRAFARVOGS
      • KORPÚLFSSTAÐIR
    • SKÓLARNIR Í GRAFARVOGI
      • FÉLAGSMIÐSTÖÐVAR
      • FRAMHALDSSKÓLAR
      • FRÍSTUNDAHEIMILI
      • HEIMILI OG SKÓLI – LANDSSAMTÖK FORELDRA
        • FORELDRASÁTTMÁLINN
      • LEIK- OG GRUNNSKÓLAR
      • TÓNLISTARSKÓLINN
      • TÓNSKÓLI HÖRPUNNAR
    • STOLT GRAFARVOGS
    • ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐVAR
      • DAGFORELDRAR
        • DAGFORELDRAR Í HVERFINU
      • FÉLAGSMIÐSTÖÐ Í SPÖNG
      • ELDRI BORGARAR
      • FERÐAÞJÓNUSTA FATLAÐS FÓLKS
      • FÉLAGSLEG RÁÐGJÖF
      • FÉLAGSLEGAR ÍBÚÐIR
      • FJÁRHAGSAÐSTOÐ
      • SÉRFRÆÐIAÐSTOÐ VIÐ GRUNNSKÓLA
      • SKAMMTÍMAVISTUN ÁLFALAND
  • AÐSENT EFNI
    • DALE CARNEGIE
      • NÆSTA KYNSLÓÐ
    • TAPAÐ – FUNDIÐ
    • JÓLIN Í GRAFARVOGINUM
  • ÍÞRÓTTIR
    • FJÖLNIR
      • Sumarnámskeið 2019
      • Sumarnámskeið 2018
      • Sumarnámskeið 2016
    • GOLFKLÚBBUR REYKJAVÍKUR – KORPA
    • ÍÞRÓTTIR OG ÚTIVERA
    • GRAFARVOGSLAUG
      • ALMENNAR UPPLÝSINGAR
  • UM OKKUR

Samstarf um uppbyggingu á Ártúnshöfða

07 jún 2017
Baldvin Berndsen
0
Ártúnshöfði, Grafarvogur, Skipulag

Samstarf um uppbyggingu á Ártúnshöfða

  • Samstarf um uppbyggingu 273 þúsund fermetra svæðis á Ártúnshöfða vestan Breiðhöfða fyrir allt að 4.000 nýjar íbúðir
  • Stefnt á hraða og hagkvæma uppbyggingu
  • Áhersla á hagstæðar aðstæður fyrir ungt fólk og þá sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð
  • Lóðarhafar taka þátt í uppbyggingu innviða með heildarhagsmuni að leiðarljósi
  • Öðrum lóðarhöfum stendur til boða að ganga til samstarfs 

Samstarfsyfirlýsing um uppbyggingu á Ártúnshöfða vestan Breiðhöfða var undirrituð í dag.  Borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson og fulltrúar lóðarhafa, Ingvi Jónasson hjá Klasa og Pétur Árni Jónsson hjá Heild, skrifuðu undir á einni af fjölmörgum nýjum byggingarlóðum.  Svæðið sem samkomulagið nær til er 273.000 fermetrar og er gert ráð fyrir að á þetta svæði geti komið 3 – 4.000 nýjar íbúðir.  Fyrirsjáanlegt er að á Ártúnshöfða verði eitt mesta uppbyggingarsvæðið í Reykjavík á næstu árum.

Aðilar að samkomulaginu við borgina eru Heild fasteignafélag hf. fyrir hönd Árlands ehf. og Klasi hf. fyrir hönd Elliðaárvogs ehf.   

Ungt fólk í öndvegi

Við undirbúningi uppbyggingar íbúðasvæðisins á Ártúnshöfða verður haft að leiðarljósi að skapa hagstæðar aðstæður á hluta svæðisins fyrir ungt fólk og/eða þá sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð eða kjósa að vera á leigumarkaði. Markmiðið er að skapa aðstæður til að byggja ódýrt húsnæði án þess að slegið sé af gæðakröfum, skapa möguleika fyrir deililausnir, bæði er lýtur að húsnæði, innviðum og samgöngum, eins og segir í yfirlýsingu. Vinna skal með þessi markmið á öllum stigum undirbúnings, deiliskipulagsgerðar, uppbyggingar- og söluferlis.

 

Samstarf um deiliskipulag og uppbyggingu

Aðilar að samkomulaginu munu standa sameiginlega að deiliskipulagstillögu sem afmarkast af þeim lóðum sem þeir ráða yfir á Ártúnshöfða og við Elliðaárvog.  Einnig er gert ráð fyrir samstarfi um að gera lóðir byggingarhæfar og ráðstöfun þeirra.   

Þó deiliskipulags­tillaga miðist við lóðir samningsaðila verður tekið mið af fyrirliggjandi rammaskipulagi fyrir Elliðaárvog og Ártúnshöfða og er markmið samstarfsins að hámarka gæði skipulagsins á svæðinu og verða núgildandi lóðarmörk ekki látin hafa áhrif á útfærslu deiliskipulagstillögu heldur horft til heildar­hagsmuna. Hafi aðrir lóðarhafar vestan Breiðhöfða  áhuga á að koma inn í samstarfið er það mögulegt.

Gott jafnvægi milli íbúða og atvinnustarfsemi

Kveðið er á um það í samningi að við deiliskipulagsvinnuna skuli sérstaklega horft til þess að skapa gott jafnvægi milli íbúðarhúsnæðis, atvinnuhúsnæðis og þjónustu í hverfinu, auk tenginga við almennings­samgöngur. Jafnframt verður unnin áætlun um nýtingarhlutfall lands og frummat á kostnaði við innviði og opin svæði. Frumkostnaðar­áætlun skal ná til gatnagerðar, breytinga á lögnum sem þarf að afskrifa, kostnaðar við blágrænar lausnir svæðisins, gatnalýsingu og gerð opinna svæða. Enn fremur skal matið ná hlutfallslega til  annarra innviða, svo sem skóla og leikskóla, sem þjóna munu svæðinu ásamt öðrum fram­tíðar­svæðum í Elliðaárvogi/Ártúnshöfða. 

Rammasamningur verður gerður til að ákvarða hlutfallslega kostn­að­arþátttöku lóðarhafa á svæðinu við gerð innviða, greiðslutilhögun og tímasetningar greiðslna vegna inn­viðagerðar, hlutfall leiguíbúða á svæðinu, kauprétt á leiguíbúðum og listskreytingar. Þá verður horft til kostnaðarþátttöku í væntanlegri Borgarlínu sem og gatnagerðargjalda vegna uppbyggingar á svæðinu.

Þá verða sett viðmið varðandi veðsetningu lóða til þess að koma í veg fyrir óhóflega skuldsetningu þeirra.

Skipaður verður sérstakur stýrihópur lóðarhafa og Reykjavíkurborgar.  

Í frétt á vef Reykjavíkurborgar er yfirlitsmynd af svæðinu sem um ræðir og vísanir í tengt efni: http://reykjavik.is/frettir/samstarf-um-uppbyggingu-artunshofda

 

Email, RSS Follow

Share this:

  • Click to print (Opens in new window) Print
  • Click to email a link to a friend (Opens in new window) Email
  • Click to share on Facebook (Opens in new window) Facebook
  • Click to share on LinkedIn (Opens in new window) LinkedIn

Sendu skilaboð Hætta við svar

*
*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.

Recent

Popular

Comments

Helgihald kyrruviku og páska í Grafarvogskirkju

15 apr 2025
No Responses.

Fundur umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur 12. mars 2025

16 mar 2025
No Responses.

Keldnaland - niðurstöður samkeppni

13 maí 2024
No Responses.

Helgihald kyrruviku og páska í Grafarvogskirkju

15 apr 2025
No Responses.

Hverfið okkar

25 jún 2013
No Responses.

Grafarvogskirkja er kirkjan okkar

25 jún 2013
No Responses.
banner
banner

Gagnlegir tenglar

  • HEILSUGÆSLAN
  • MIÐGARÐUR
  • HVERFIÐ MITT
  • MOJE_S_SIEDZTWO
  • MANO_KAIMYNIST_JE
  • MY NEIGHBOURHOOD

Börnin okkar

  • FRAMHALDSSKÓLAR
  • GUFUNESBÆR
  • LEIK OG GRUNNSKÓLAR
  • SKÁTAFÉLAGIÐ HAMAR
  • TÓNLISTARSKÓLINN

GRAFARVOGSBÚAR Á FLICKR

Allur réttur áskilinn © 2024
www.grafarvogsbuar.is