Opinn fundur um umferðamál verður haldinn í Hlöðunni Gufunesbæ miðvikud. 21. okr ( nk. ) kl. 20.00. Kynnt verður skýrsla umferðaröryggishóps hverfisráðsins og umræður um umferðamál hverfisins með áherslu á öryggismál í framhaldi. Við hvetjum fólk að mæta á fundinn og endilega koma með fyrirspurnir og ábendingar úr sínu nærumhverfi, en aðilar frá umhverfis og skipulagssviði Rvk. verða á fundinum.
Dagskrá:
20:00-20:25 Kynning umferðarnefndar á umferðarskýrslu
20:25-21:15 Umræður
21:15-21:30 Önnur mál
Á fundinum verða nefndarmenn hverfisráðs Grafarvogs auk aðila frá Umhverfis og skipulagssviði borgarinnar
Fundarstjóri: Herdís Þorvaldsdóttir