Laugardaginn 14. apríl verður iðkendum boðið á opna æfingu og kynningu á leikmönnum í meistaraflokkum Fjölnis í knattspyrnu. Kynningin/æfingin fer fram í Egilshöll kl. 9:30 og stendur til kl. 10:45.
Leikmenn verða kynntir til leiks í upphafi, í kjölfarið fara iðkendur á stöðvar og gera æfingar undir leiðsögn meistaraflokkanna. Eftir það er afhending á plakötum og iðkendum gefið tækifæri á því að fá áritanir frá leikmönnum liðanna.
Iðkendum gefst tækifæri á að gera æfingar og fá kennslu frá leikmönnum meistaraflokkanna ásamt því að fá afhent plakat með liðsmynd af liðunum. Allir velkomnir #FélagiðOkkar