Vissir þú….
..að það starfa í dag um 4o listamenn á Korpúlfsstöðum ….?
.. að listamenn bjóða gesti velkomna inn á vinnustofur sínar 1.mars…?
.. að á Korpúlfsstöðum er rekið ”Gallerí Korpúlfsstaðir”….?
.. að á Korpúlfsstöðum er ”Litli Bóndabærinn” með kaffisölu….?
.. að sýningin ”Kjallara Mottur” er sýning mánaðarins í Örsalnum á Korpúlfsstöðum…?
.. að söngur og ljúf tónlist mun óma um sali Korpúlfsstaða á Opnu Húsi…?
Nei þú vissir það ekki….en….
Á Korpúlfsstöðum eru allir listamenn félagsmenn SÍM og bjóða þeir gestum til sín 4 sinnum á ári til að koma og upplifa það sem er að gerast innandyra Korpúlfsstaða. Verið hjartanlega velkomin til okkar 1.mars. milli kl. 13-17. KorpArt Hópurinn