Okkar vinsæla TORG skákmót Fjölnis verður haldið í Rimaskóla næsta föstudag, 26. janúar kl. 15.00 – 17.15
Stórmeistarinn okkar og goðsögnin Friðrik Ólafsson verður heiðursgestur mótsins. Hann á afmæli þennan dag á Skákdegi Íslands.
Það er mikill heiður fyrir okkur Fjölnismenn að fá Friðrik til okkar af þessu tilefni og því vona ég að allir grunnskólakrakkar í Fjölni nýti sér þetta tækifæri og taki þátt í mótinu.
- Ókeypis þátttaka
- 40 verðlaun eða happadrætti
- Fríar veitingar frá Hagkaup og Emmess
Gott er að mæta tíu mínútum fyrir mót upp á að ná skráningu.
Sjá www.fjolnir.is, www.skak.is