Nýtt útibú Íslandsbanka á Höfðabakka

Header auglýsing hægri ÍslandsbankiNýtt útibú Íslandsbanka á Höfðabakka

Nýtt útibú Íslandsbanka opnaði á Höfðabakka 9 mánudaginn 9. september þegar útibú Íslandsbanka við Gullinbrú, í Hraunbæ og Mosfellsbæ sameinuðust í eitt útibú.

Í útibúinu á Höfðabakka eru 23 reynslumiklir starfsmenn allra þessara þriggja útibúa þ.a. viðskiptavinir eiga að geta gengið að sínum góðu ráðgjöfum líkt og fyrr.

Markmið sameiningarinnar er að bjóða upp á öflugt útibú í austurhluta höfuðborgarinnar sem veitir bæði fyrirtækjum og einstaklingum fyrirmyndar fjármálaþjónustu. Sameiningin er einnig liður í að auka hagræði í rekstri útibúanets Íslandsbanka en bankinn rekur 19 útibú eftir sameininguna.

Útibússtjóri hins nýja sameinaða útibús er Ólafur Ólafsson, áður útibússtjóri við Gullinbrú, aðstoðarútibússtjóri er Karen Rúnarsdóttir, áður útibússtjóri í Mosfellsbæ og Ýlfa Proppe Einarsdóttir, fyrrverandi útibússtjóri í Hraunbæ, er viðskiptastjóri einstaklinga.  Viðskiptavinir munu halda reikningsnúmerum sínum við sameininguna og hraðbankar verða áfram staðsettir í Mosfellsbæ og Hraunbæ.

Húsnæði nýja útibúsins, sem er hluti af gamla Tækniháskólanum, hefur verið endurnýjað. Lögð er áhersla á gott aðgengi fyrir viðskiptavini en nýja útibúið liggur nálægt stórum umferðaræðum og er í 5 til 15 mínútna akstursfjarlægð frá öllum hverfum höfuðborgarinnar. Þá verða næg bílastæði hjá nýja útibúinu.

Þess er gaman að geta að nýja útibúið má finna á samfélagsmiðlinum facebook undir nafninu Íslandsbanki Höfðabakka og hvetja starfsmenn folk til að kynna sér það.

Starfsfólk útibúsins hvetur viðskiptavini til að renna í heimsókn til að skoða nýja útibúið, hitta sína ráðgjafa og tengiliði og samgleðjast við þessi tímamót,  Ætíð kaffi á könnunni.

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.