Ágúst Ólason hefur verið ráðinn skólastjóri við Foldaskóla. Hann hefur lokið M.Ed. gráðu í náms- og kennslufræði með áherslu á kennslufræði og skólastarf og hefur starfað sem grunnskólakennari, deildarstjóri, aðstoðarskólastjóri og skólastjóri. Hann starfaði m.a. í sex ár sem aðstoðarskólastjóri í Norðlingaskóla. Átta sóttu um skólastjórastöðuna í Foldaskóla en einn dró umsókn sína til baka. Umsóknarfrestur rann út 9. nóvember.
Ágúst tekur við skólastjórastöðunni Foldaskóla um næstu áramót þegar Kristinn Breiðfjörð lætur af störfum.
Árni Einarsson var ráðinn í stöðu skólastjóra við Klettaskóla en umsóknarfrestur um stöðuna rann út 9. nóvember. Árni er með háskólapróf í sérkennslufræðum og mannauðsstjórnun og hefur starfað sem deildarstjóri og aðstoðarskólastjóri í Brúarskóla 12 ár. Þá hefur hann kennt við Þjálfunarskóla ríkisins og hefur víðtæka reynslu af starfi með fötluðum, bæði börnum og fullorðnum.
Fjórir sóttu um skólastjórastöðuna í Klettaskóla en hann er sérskóli sem þjónar öllu landinu. Fráfarandi skólastjóri er Erla Gunnarsdóttir sem lætur af störfum um áramótin.
Fjórir sóttu um skólastjórastöðuna í Klettaskóla en hann er sérskóli sem þjónar öllu landinu. Fráfarandi skólastjóri er Erla Gunnarsdóttir sem lætur af störfum um áramótin.
Nýir skólastjórnendur eru boðnir velkomnir til starfa.