Það var sigurhátíð í Dalhúsum um helgina þegar kvennalið Fjölnis í handknattleik tryggði sérsæti í úrvalsdeild kvenna í handknattleik með tveggja marka sigri á KA/Þór 28:26.
Fyrir leikinn var KA/Þór í toppsætinu og dugði jafnteflið til þess að komast upp um deild . Fjölniskonur þurftu aðeins að vinna leikinn í dag til þess að jafna KA/Þór að stigum og koma sér upp fyrir norðankonur vegna betri árangurs í innbyrðis viðureignum liðanna, sem Grafarvogsstúlkur og gerðu.
Fjölnir mun því eiga lið í úrvalsdeildum kvenna og karla á næsta tímabili en karlaliðið er fyrir löngu búið að tryggja sér í efstu deild
Andrea Jacobsen var markahæst í liði Fjölnis með sjö mörk en Berglind Benediktsdóttir skoraði sex mörk.
Fjölnir og KA/Þór fengu 33 stig hvort. FH vann HK 25:21 og endaði í þriðja sæti með 29 stig en HK endaði í fjórða sæti með 26 stig.
Þar með munu bæði kvenna og karla liðinn okkar spila í efstu deild á næsta tímabili í handbolta sem er frábær árangur hjá okkur og klárt skref uppá við.