Flottir jólatónleikar voru í Grafarvogskirkju í dag.
Kór Grafarvogskirkju söng nokkur lög. Einnig tóku Vox Populi nokkur lög og síðan sungu kórarnir saman jóla og helgilög.
Sérstakur gestur tónleikanna var Svavar Knútur sem söng nokkur lög og skellti sér síðan með kórunum í söng.
Undirleikur var í höndum Kjartans Valdimarssonar og Gunnars Hrafnssonar.
Stjórnendur í dag voru Hákon Leifsson og Hilmar Örn Agnarsson.
Margir íbúar Grafarvogs mættu til að hlíða á fallega tóna á þessum fallega laugardegi.