Borgarbókasafnið | Menningarhús Spönginni Laugardaginn 10. mars kl. 13.15-14
Leifur Gunnarsson – kontrabassi
Hjörtur Ingvi Jóhannsson – Píanó
Magnús Trygvason Elíassen – Trommur
Ókeypis aðgangur.
Á næstu tónleikum Jazz í hádeginu verða tekin fyrir verk Leonard Bernstein, en hann hefði orðið 100 ára á þessu ári. Hjörtur Ingvi Jóhannsson píanóleikari leiðir tríó en auk hans skipa það Magnús Trygvason Elíassen á trommur og Leifur Gunnarsson á kontrabassa. Flutt verða helstu söngleikjaperlum Bernsteins í útsetningum tríósins.
Hjörtur Ingvi er fæddur í Reykjavík þann 7. september 1987. Hann hóf ungur píanónám í Tónskóla Eddu Borg, en þaðan lá leiðin í Tónlistarskóla F.Í.H., þaðan sem hann útskrifaðist með burtfararpróf í klassískum píanóleik árið 2010. Eftir að hafa lagt stund á hagfræði við H.Í. Þá hóf Hjörtur nám við Konservatoríið í Amsterdam, þaðan sem hann útskrifaðist með B.M. gráðu í jasspíanóleik, sem innihélt einnig kennsluréttindi. Að lokinni útskrift þaðan sumarið 2015 fluttist Hjörtur aftur til Íslands, þar sem hann starfar sem tónlistarmaður og píanókennari.
Hjörtur er hljómborðsleikari hljómsveitarinnar Hjaltalín, og er virkur í tónlistarlífi landsins, þ.á.m. sem sjálfstæður lagasmiður, útsetjari í hinum ýmsu hljómsveitum og leikhúsum. Hann hefur vítt áhugasvið, en hefur síðustu árin einbeitt sér að jass og popptónlist. Hjörtur kennir einnig píanóleik við Tónlistarskóla Árbæjar og spilar meðleik í Tónlistarskóla FÍH.