Íslandsmót ungmenna fer fram helgina 17.–18. október í Rimaskóla. Teflt er í fimm flokkum. Krýndir verða 10 Íslandsmeistarar – efsta strákur og stelpa í öllum flokkunum fimm.
Skráning fer fram á Skák.is (guli kassinn efst) – Upplýsingar um þegar skráðar kepepndur má finna hér.
Allir flokkar hefjast 12:00 á laugardeginum. Tekið verður við þátttökugjöldum og staðfestingu á mætingu frá 11:20 – 11:50. Þeir keppendur sem mæta eftir 11:50 geta misst sæti sitt í mótinu.
Glæsilegar vinningar í boði – auk þess sem happdrætti verður að loknu móti.
Þátttökugjald er krónur 1.500 og greiðist með reiðufé við staðfestingu á mætingu.
Stelpur og strákar tefla saman í flokkum en veitt eru verðlaun fyrir bæði kyn. Sigurvegari í flokki 9-10 ára tryggir sér sæti á Norðurlandamótinu í skák sem fer fram í febrúar í Svíþjóð. Sigurvegarar í elstu flokkunum þremur tryggja sér sæti á Unglingameistaramóti Íslands.
Verði menn jafnir í efstu sætum er teflt um Íslandsmeistaratitla en stig reiknuð um önnur sæti.
Skráning er á Skák.is til og með 14. október. Mikilvægt er að mæta tímanlega milli 11:20 – 11:50 á laugardeginum til að staðfesta mætingu. Ekki er tekið við skráningum eftir 14. október.
8 ára og yngri (f. 2007 og síðar)
Umhugsunartími: 7 mínútur.
Fjöldi umferða: Allir keppendur tefla fimm umferðir á laugardeginum. Eftir fimm umferðir verður niðurskurður þannig að keppendur með þrjá vinninga eða fleiri komast áfram og mæta líka á sunnudegi. Umferðafjöldi á sunnudegi verður tvær til fjórar umferðir eftir heildarfjölda keppenda.
Dagskrá: Mótið hefst 12:00 á laugardeginum og 12:00 á sunnudeginum fyrir þá sem komast áfram.
9-10 ára (f. 2005 og 2006)
Umhugsunartími: 10 mínútur.
Fjöldi umferða: Allir keppendur tefla fimm umferðir. Eftir fimm umferðir verður niðurskurður þannig að keppendur með þrjá vinninga eða fleiri komast áfram og mæta líka á sunnudegi. Umferðafjöldi á sunnudegi verður tvær til fjórar umferðir eftir heildarfjölda keppenda.
Dagskrá: Mótið hefst 12:00 á laugardeginum og 12:00 á sunnudeginum fyrir þá sem komast áfram.
11–12 ára (f. 2003 og 2004)
Umhugsunartími: 15 mínútur með 5 sekúndna viðbótartíma fyrir hvern leik.
Fjöldi umferða: 9
Dagskrá: Mótið hefst 12:00 á laugardeginum og verða þá tefldar 5 umferðir. Mótinu verður framhaldið 12:00 á sunnudeginum og verða þá tefldar fjórar umferðir.
13–14 ára (f. 2001 og 2002)
Umhugsunartími: 15 mínútur með 5 sekúndna viðbótartíma fyrir hvern leik.
Fjöldi umferða: 9
Dagskrá: Mótið hefst 12:00 á laugardeginum og verða þá tefldar 5 umferðir. Mótinu verður framhaldið 12:00 á sunnudeginum og verða þá tefldar fjórar umferðir.
15–16 ára (f. 1999 og 2000)