Árni Davíðsson talar um samgönguhjólreiðar
Menningarhús Spönginni, mánudaginn 24. apríl kl. 17:15-18:00
Aðstaða fyrir hjólandi vegfarendur fer sífellt batnandi í Reykjavík og þar er Grafarvogurinn engin undantekning. Nýlegar göngu- og hjólabrýr yfir Elliðaárósa stytta leiðina úr Grafarvoginum í miðbæinn. 10 mínútur á hjóli og maður er kominn úr Spönginni í fuglaskoðun við Geldinganes eða í gróðurinn í Mosfellsbæ. Í kaupbæti er frítt eldsneyti, pump fyrir hjarta og blóðrás, framlag til umhverfisverndar og tækifæri til að njóta tilverunnar undir berum himni!
Árni Davíðsson frá Hjólafærni á Íslandi talar á léttum nótum um samvinnu í umferðinni, hindurvitni hjólreiða, hjólaleiðir, hjólamenningu, öryggi og hjólafærni, aðbúnað fyrir hjól og fjölbreytta samgöngumöguleika í borginni.
Allir velkomnir, ókeypis aðgangur.
Nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Stephensen, deildarbókavörður
sigridur.steinunn.stephensen@reykjavik.is
s. 411 6230