Helgihald sunnudaginn 16. september

Guðsþjónusta í Grafarvogskirkju kl. 11:00. Séra Guðrún Karls Helgudóttir og séra Arna Ýrr Sigurðardóttir þjóna. Fermingarbörnum úr Foldaskóla og foreldrum þeirra er sérstaklega boðið. Pálínuboð, þar sem allir leggja eitthvað til, og fundur með foreldrum fermingarbarna er á eftir guðsþjónustunni. Vox Populi leiðir söng og organisti er Hilmar Örn Agnarsson.

Sunnudagaskóli á neðri hæð kirkjunnar kl. 11:00. Dans, söngvar, sögur og límmiðar. Að auki verður búin til litabók. Pétur Ragnhildarson hefur umsjón.

Selmessa í Kirkjuselinu í Spöng kl. 13:00. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar. Vox Populi leiðir söng og organisti er Hilmar Örn Agnarsson.

Verið öll hjartanlega velkomin!

Um höfundinn

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.