Guðsþjónusta, sunnudagaskóli, Selmessa og skírnarstund

Guðsþjónusta í Grafarvogskirkju kl. 11:00. sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar. Kór Grafarvogskirkju syngur. Stjórnandi er Hákon Leifsson.

Sunnudagaskólinn er á sínum stað á neðri hæð kirkjunnar kl. 11:00. Dans, söngvar, sögur og nú er blöðrudagur. Pétur Ragnhildarson hefur umsjón.

Skírnarstund í Grafarvogskirkju klukkan 12:30. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir heldur utan um stundina. Skírnarstundin er foreldrum að kostnaðarlausu og organisti kirkjunnar annast tónlistina. Þau sem vilja láta skíra eru beðin um að hafa samband hingað í kirkjuna í síma 5879070 eða í netfangið grafarvogskirkja@grafarvogskirkja.is. Einnig er hægt að hafa samband við Örnu Ýrr á netfangið arna@grafarvogskirkja.is

Selmessa í Kirkjuselinu í Spöng kl. 13:00. sr. Guðrún Karls Helgudóttir þjónar. Vox Populi syngur og undirleikari er Hilmar Örn Agnarsson.

Verið öll hjartanlega velkomin!

Um höfundinn

Sendu skilaboð

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.