Annað Powerade sumarhlaupið 2018 er Fjölnishlaup Gaman ferða sem ræst verður í 30. sinn fimmtudaginn 10. maí kl. 11:00 frá Íþróttamiðstöðinni í Grafarvogi við Dalhús á 30 ára afmælisári Fjölnis. Fjölnishlaupið er jafnfram Íslandsmótið í 10 km hlaupi í ár.
Vegalengdir
10 km, 5 km og 1,4 km skemmtiskokk.
Athugið að aðeins 10 km hlaup gildir til stiga í Powerade sumarhlaupunum.
Þátttökugjöld og skráning
3.000 kr fyrir 10 km hlaup og 2.500 kr fyrir 5 km hlaup með forskráningu á hlaup.is fram að miðnætti 9. maí en 3.500 kr (10 km) og 3.000 kr (5 km) ef skráð er á staðnum.
Fyrir skemmtiskokk er þátttökugjaldið 1.000 kr, en hver fjölskylda greiðir að hámarki 3.000 kr fyrir þátttöku í skemmtiskokki.
Afhending forskráningargagna og skráning á staðnum verður í anddyri Sundlaugar Grafarvogs kl. 9:00-10:30.
Hlaupaleiðirnar
10 km hlaupið verður ræst kl 11:00 frá göngustíg við Gagnveg sem er um 500 m norðaustan við Íþróttamiðstöðina í Dalhúsum – sjá kort. Hlaupið verður vestur fyrir fótboltavöllinn eftir Gagnvegi og um Fjallkonuveg og þaðan beygt niður göngustíg í átt að Grafarvogi og hann hlaupinn í vesturátt. Beygt verður inn í Bryggjuhverfið um Gullinbrú og þaðan verður hlaupið eftir göngustíg meðfram Elliðaárósum og yfir gömlu brýrnar við Geirsnef. Réttsælis hringur er tekinn um Geirsnef yfir nýju hjóla- og göngubrýrnar við Elliðaárósa. Síðan verður sama leið hlaupin til baka. Endamark er við Íþróttamiðstöðina í Dalhúsum. Brautin hefur verið löglega mæld og verða því afrek tekin gild í afrekaskrá FRÍ. Brautin er annáluð fyrir góðar bætingar enda mjög flöt ef frá er talinn upphafs- og lokakílómetri.
5 km hlaupið verður ræst kl 11:10 frá endamarki. Hlaupaleiðin er sú sama fyrri helming hlaupsins, en í Bryggjuhverfi verður snúið við og hlaupið sömu leið til baka.
Skemmtiskokkið verður ræst skömmu á eftir 5 km hlaupinu. Í skemmtiskokkinu verður 1,4 km hringur hlaupinn um Dalhús og yfir á Fjallkonuveg – sjá kort. Sjá PDF útgáfu af korti
Tímataka og úrslit
Tímataka verður með flögum í öllum vegalengdum.
Úrslit verða birt á síðum Powerade sumarhlaupanna og hlaup.is
Verðlaun
- Farandbikarar fyrir 1. sæti karla og kvenna í 10 km hlaupum
- Verðlaunagripir fyrir fyrsta sæti karla og kvenna í öllum vegalengdum
- Verðlaunapeningar fyrir fyrsta sæti karla og kvenna í hverjum aldursflokki í öllum vegalengdum
- Þátttökupeningar
- Tvenn gjafabréf frá Gaman ferðum í útdráttarverðlaun að verðmæti 50 þús. kr hvort
- Fjöldi annara glæsilegra útdráttarverðlauna
- Keppendur í 10 fyrstu sætum karla, kvenna og í aldursflokkum í 10 km hlaupi öðlast stig í keppni um stigahæstu hlaupara í Powerade sumarhlaupum
Aldursflokkar
5 km og 10 km hlaup
- 18 ára og yngri
- 19-39 ára
- 40-49 ára
- 50-59 ára
- 60 ára og eldri
Skemmtiskokk
- 10 ára og yngri
- 11-12 ára
- 13-14 ára
- 15 ára og eldri
Annað
Drykkir í boði CCEP við 5 km og í endamarki og frítt í sund að hlaupi loknu.
Hlaupstjóri: Erla Gunnarsdóttir, (erlagu@internet.is)
Heimasíða skipuleggjenda: www.fjolnir.is